Innlent

Björgvin formaður efnahags- og skattanefndar

Björgvin G. Sigurðsson
Björgvin G. Sigurðsson

Við upphaf þingfundar í dag var tilkynnt um hvaða þingmenn hafa tekið við formennsku og varaformennsku í fastanefndum Alþingis. Formennsku í efnahags- og skattanefnd mun Björgvin G. Sigurðsson fyrrverandi viðskiptaráðherra gegna en Árni Þór Sigurðsson verður varaformaður.

Þórunn Sveinbjarnardóttir mun gegna formennsku í félags- og trygginganefnd en Þuríður Backman verður varaformaður. Steinunn Valdís Óskarsdóttir tekur að sér formennsku í samgöngunefnd og Árni Þór Sigurðsson verður varaformaður þar.

Þá mun Helgi Hjörvar verða formaður umhverfisnefndar og Atli Gíslason varaformaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×