Innlent

Dæmi um að fólk vilji borga með íbúðum sínum

Fasteignasalar þekkja dæmi þess að fólk vilji borga með íbúðum sínum til að losna við skuldirnar. Ekki er þó vitað til þess að slíkir samningar hafi gengið í gegn.

Í fréttum Stöðvar tvö í gær var rætt við Karl Eggertsson fjölskylduföður á Akranesi sem auglýsti einbýlishús sitt á Skaganum í smáauglýsingum Fréttablaðsins undir yfirskriftinni: Vantar þig milljón krónur? Húsið er röskir tvöhundruð fermetrar og fæst sum sé gegn yfirtöku um 40 milljóna króna skulda og milljón í vasann.

Fréttastofa hefur rætt við fasteignasala sem segja dæmi þess frá bankahruni að fólk hafi leitað til þeirra og viljað reyna að selja með svipuðum skilmálum og Karl, það er að borga með íbúðinni til að losna við skuldir. Eftir því sem fréttastofa kemst næst hafa slíkar sölur ekki gengið í gegn, enda ekki margar eignir sem seljast þessa dagana þar sem um 80% samdráttur hefur orðið í sölu fasteigna á einu ári.

Og þegar staðan verður slík að skuldir eru vaxnar verðmæti íbúðar yfir höfuð er enginn hægðarleikur að losna við eignina. Eins og einn fasteignasali útlistaði fyrir fréttastofu er fólk þá gjarnan komið í sjálfheldu. Segjum að íbúð sé metin á 30 milljónir en skuldirnar hafa vaxið í 33 milljónir. Vilji einhver kaupa á 30, þarf hann að hafa aðgang að veði á annarri eign, því ekki má íbúðin vera veðsett í topp. Og ef seljandinn ætlar að flytja með sér skuld upp á 3 milljónir, þarf hann einnig að finna veð fyrir þeim milljónum.

Í svona stöðu eru því allar líkur á að fólk geti sig hvergi hrært. Fasteignasalar sem fréttastofa ræddi við könnuðust ekki við að svona sölur hefðu gengið í gegn.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×