Bankastjórarnir bera ábyrgðina á hruninu 11. febrúar 2009 12:13 Mats Josefsson. MYND/Stefán
Bankastjórar og eigendur gömlu bankanna geta ekki vikið sér undan því að þeir, og þeir einir, bera ábyrgð á því hvernig fór fyrir bönkunum, segir Mats Josefsson, sérfræðingur ríkisstjórnarinnar við endurreisn fjármálakerfisins. Hann segir ríkisstjórnina þurfa að koma með ákveðnari hætti að rekstri nýju bankanna og að stjórnendur þeirra þurfi að átta sig á breyttum aðstæðum. Mats Josefsson er sænskur sérfræðingur í bankakreppum sem komið hefur að endurreisn fjármálakerfa í heimalandi sínu Svíþjóð, Noregi og víðar. Áður en hann tók við formennsku í samræmingarnefnd ríkisstjórnarinnar um endurreisn fjármálakerfisins var hann sérfræðingur hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og var í hópi sérfræðinga sem hafði Ísland og önnur Norðurlönd á sinni könnu. Á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu í morgun sagði hann bankakreppur ekki óþekkt fyrirbæri en algert hrun eins og í íslenska bankakerfinu væri nánast óþekkt. Ríkisstjórnin samþykkti áætlun samræmingarnefndarinnar á fundi sínum í gær. Á blaðamannafundinum í morgun fór Josefsson yfir áætlun og tilögur nefndarinnar. Hann sagði óþarfa að ætla sér að uppgötva hjólið í þessum efnum, vegna þess að til væru þekktar leiðir sem gefist hefðu vel. Meðal þess sem nefndin leggur til er að sett verði á laggirnar eignaumsýslufélagi í eigu ríkisins, sem tæki yfir endurskipulagningu 10 til 15 stærstu fyrirtækjanna í landinu sem ættu í erfiðleikum og teldust verða þjóðhagslega mikilvæg. Bankarnir teldu að þeir gætu valdið þessu hlutverki en þeir gætu það ekki. Þá þyrftu stjórnendur nýju bankanna að átta sig á því að þeir gætu ekki rekið viðskipti eins og venjulega eða tíðkaðist fyrir tíma bankahrunsins. Þeir þyrftu líka að átta sig á því að nú væru bankarnir í ríkiseign. Þá sagði Josefsson að ríkisstjórnin þyrfti líka að átta sig á nýju hlutverki sínu sem eigenda bankanna. Hún hefði ekki fyrr en nú sýnt að hún ætlaði að koma með meira stefnumarkandi hætti að rekstri og framtíðaruppbyggingu bankanna. Þá telur Josefsson bagalegt að ekki skuli hafa verið lagt fram yfirlit yfir eignir og skuldir nýju bakanna, en bjóst við að það yrði gert bráðlega. Mats Josefsson var þrátt fyrir allt bjartsýnn á að íslendingum og íslensku bankakerfi muni takast að endurheimta traust á alþjóðavettvangi ef stjórnvöldum og bankakerfinu tækist að vinna eftir þeim áætlunum sem lagðar hafa verið fram.
Mest lesið Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Innlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Innlent Dótturdóttir JFK er látin Erlent Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu Innlent Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Innlent „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Innlent Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Innlent Fleiri fréttir Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rúmur helmingur bjartsýnn fyrir 2026 Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Börn niður í leikskólaaldur um helmingur þeirra sem slasast „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Sátt við fyrsta árið og taka stöðuna vegna forfalla ráðherra á næstu dögum Tíu létust í umferðinni á árinu og alvarlegustu slysunum fækkar ekki Árangur aðgerða ekki staðist væntingar almennings Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Ríkisstjórnin sek um ósanngjarna mismunun Vonbrigði í menntamálum og áramótasprengja Hafa áhyggjur af frelsissviptingu barna í brottfararstöð Kristrún ræðir við Pétur um borgarstjórnarframboð Níu ráðherrar funda með Höllu Söfnun fyrir Kjartan gengur vel Sjá meira