Hefur ekki trú á boðuðum breytingum á stjórnarskrá 11. febrúar 2009 09:47
Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist aðspurður ekki hafa mikla trú á boðuðum stjórnarskrárbreytingum ríkisstjórnarinnar og fyrirhuguðu stjórnlagaþingi. Hann hefur lagt fram á Alþingi fyrirspurn til Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í fimm liðum varðandi málið. „Í fyrsta lagi finnst mér að fram til þessa hafi vantað pólitískt samráð um þær breytingar sem ríkisstjórnin hefur boðað. Í því sambandandi nefni ég að allar stjórnarskrárbreytingar sem farið hafa í gegn á undanförnum áratugum hafi verið byggðar á víðtæku samráði og pólitískri sátt," segir Birgir. Þá hefur þingmaðurinn áhyggjur af því tíminn fram að þingkosningum sé of skammur til að klára þær breytingar sem ríkisstjórnin hefur nú þegar boðað. Í þriðja lagi segist Birgir ekki átta sig á því hverju ríkisstjórnin ætli að gera efnislegar breytingar á stjórnarskránni í flýti fyrir kosningar en jafnframt boða til stjórnlagaþings síðar á árinu þar sem fara eigi yfir stjórnarskránna í heild sinni. Birgir á von á því að forsætisráðherra svari honum fljótlega, jafnvel í næstu viku. Ekki sé um tæknilegar spurningar að ræða heldur pólitíska stefnumótun ríkisstjórnarinnar. Spurningar Birgis: 1. Hver eru áform ríkisstjórnarinnar um breytingar á stjórnarskrá fyrir kosningar í vor? 2.Hver eru áform ríkisstjórnarinnar um pólitískt samráð um þessar breytingar? 3. Telur ráðherra að nægur tími sé til þess á þeim stutta tíma sem er til kosninga að gera breytingar á stjórnarskrá? 4. Hvaða sjónarmið voru lögð til grundvallar þegar nefndarmenn voru valdir í sérstaka ráðgjafarnefnd vegna fyrirhugaðra stjórnarskrárbreytinga? 5. Hvernig samrýmast áform ríkisstjórnarinnar um að breyta stjórnarskrá fyrir vorið hugmyndum sem einnig hafa verið kynntar um að setja á fót stjórnlagaþing síðar á þessu ári?
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira