Hótað í kjölfar umfjöllunar um vændi 11. febrúar 2009 19:45
Ungu konunni, sem sagði frá samskiptum sínum við Catalinu Ncoco, bárust hótanir eftir að viðtal við hana var birt á Stöð 2 í gær. Macelina, er á þrítugsaldri og kemur frá Miðbaugsginíeu. Hún kom hingað til lands í lok síðasta sumars í þeim erindagjörðum að heimsækja vinkonu sína. Fljótlega eftir komuna hingað til lands réðust á hana vopnaðir menn - gengu í skrokk á henni og stálu vegabréfi hennar og peningum. Mennirnir, að sögn Macelinu, voru á vegum Catalinu Ncoco sem sögð er tengjast rekstri vændishúss við Hverfisgötu. Þegar Macelina reyndi að fá vegabréf sitt aftur á Catalina að hafa sett það sem skilyrði að hún ynni fyrir hana sem vændiskona. Þessu vísaði Catalina á bug í samtali við fréttastofu í gær. Eftir að viðtalið birtist á Stöð 2 í gær bárust Macelinu hótanir. Ókunnugir menn reyndu meðal annars að beita blekkingum til að lokka Macelinu af heimili sínu. Macelina hefur reynt að láta lítið fyrir sér fara af ótta við frekari líkamsárásir. Viðmælandi stöðvar tvö - sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði ljóst að mennirnir hafi ekki viljað henni neitt gott. Ekki fengust upplýsingar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hvort meint vændisstarfsemi Catalinu Ncoco væri í rannsókn. Rétt er að taka fram að Macelina hefur ekki og tengist ekki vændisstarfsemi við Hverfisgötu. Viðtalið við Macelinu var sýnt í Íslandi í dag í gær.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira