Gróflega snúið út úr ummælum forsetans 11. febrúar 2009 14:00 Björgvin Guðni Sigurðsson
Björgvin G. Sigurðsson þingmaður Samfylkingarinnar segir að snúið hafi verið út úr orðum forseta Íslands í þýskum fjölmiðlum. Forsetinn hafi ekki farið út fyrir valdsvið sitt enda hafi hann skýrt það mál sitt mjög vel. Rætt var um ummæli forseta á Alþingi í dag en Björgvin sagði forsetann hafa staðið sig framúrskarandi vel og þvert á móti hafi verið snúið gróflega út úr ummælum hans. Það vakti athygli að þegar Björgvin hafði lokið þessum ummælum sínum um Ólaf Ragnar, labbaði hann úr pontu og blikkaði þingmann út í sal og brosti. Annars voru nokkuð fjörugar umræður um ríkisbankana þar sem Ármann Kr Ólafsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins fór mikinn og talaði um að ekki væri skynsamt að skipta um hest í miðri á. Upplausnarástand væri í bankakerfinu eftir að formenn bankaráðs Nýja Glitnis og Nýja Kaupþings sögðu af sér í gær. Einnig gagnrýndi hann ráðningu bankaráðs á gömlum vini Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra í bankastjórastól Landsbankans. Össur Skarphéðinsson mætti sposkur upp í pontu og sagði að hvergi væri upplausnarástand nema innan Sjálfstæðisflokksins. Hann sagði ásakanir Ármanns beinast að fyrrverandi fjármálaráðherra Árna M. Mathiesen. Þessar ákvarðanir hafi verið teknar við ríkisstjjórnarborð fyrrverandi ríkisstjórnar og einungis væri verið að framfylgja ákvörðun fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins með því að auglýsa stöður bankaastjóranna. „Háttvirtur þingmaður Ármann Kr. Ólafsson deilir á þá stefnu sem Sjálfstæðisflokkurinn mótaði og það var fyrrverandi fjármálaráðherra sjálfur sem ræddi við formenn bankaráðanna um að auglýsa ætti stöðru bankastjóranna," sagði Össur. Þessi ummæli Össurar vöktu nokkra athygli þingmanna sem gripu fram í fyrir utanríkisráðherra þegar hann furðaði sig á ummælum þingmannsins. „Einn af greindustu þingmönnum frjálslynda flokksins kallar hér fram að ástæðan sé sú að það sé að koma prófkjör í Sjálfstæðisflokknum," sagði Össur og fékk hlátur úr sal.
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira