Litríkur fantasíuheimur 25. júní 2009 06:00 empire of the sun Dúettinn Empire of the Sun hefur vakið athygli fyrir grípandi og afslappaðar lagasmíðar sínar.
Elektródúettinn Empire of the Sun hefur vakið mikla athygli fyrir afslappaðar og grípandi melódíur sínar. Smáskífulagið Walking on a Dream hefur heldur betur hitt í mark. Mennirnir á bak við Empire of the Sun eru Ástralarnir Luke Steele og Nick Littlemore. Hljómsveitin er eins konar hliðarverkefni þeirra því báðir hafa þeir haft öðrum hnöppum að hneppa í gegnum árin; Steele sem forsprakki indísveitarinnar The Sleepy Jackson og Littlemore sem meðlimur elektróbandsins Pnau. Empire of the Sun, sem dregur nafn sitt af samnefndri skáldsögu J.G. Ballard frá árinu 1984, gaf út smáskífuna Walking on a Dream síðasta haust sem komst ofarlega á vinsældarlista í Ástralíu. Lagið kom sveitinni rækilega á kortið því samnefnd plata sem kom út í lok síðasta árs náði platínusölu í heimalandinu, auk þess sem titillagið hefur verið tilnefnt sem lag ársins í Ástralíu. Síðan þá hafa þeir félagar gefið út smáskífulögin We Are The People og Standing on the Shore, sem hafa einnig fengið góðar viðtökur. Tónlistarspekingar BBC tóku sig einnig til og settu Empire of the Sun í fjórða sætið yfir þá nýliða sem voru líklegastir til að ná langt á þessu ári. Á meðal annarra á listanum voru Little Boots, White Lies og Florence and the Machine. Þrátt fyrir að hafa gefið út sína fyrstu plötu á síðasta ári hefur Empire of the Sun enn ekki haldið tónleika. Þeir fyrstu eru fyrirhugaðir á Parklife-hátíðinni í Ástralíu sem verður haldin dagana 26. september til 5. október. Eins og útlit þeirra Steeles og Littlemores ber með sér líta þeir á hljómsveitina sem litríkan fantasíuheim þar sem allt getur gerst. „Það er núna eða aldrei og við verðum að sækja fram á við. Það þýðir ekkert að halda aftur af sér og við höfum engu að tapa. Við viljum gera eitthvað sem er sérstætt og af öðrum heimi," sagði Steele í viðtali við BBC. „Við höfum prófað hljómsveitapakkann, sem er mjög gaman, en okkur langaði að prófa að vera epískari og dramatískari. Við viljum byrja á einhverju sem er aðeins stærra en hljómsveitirnar sem við höfum verið í síðustu tuttugu árin. Við viljum meiri skemmtun, litadýrð, jákvæðni og melódíu inn í dæmið," sagði hann. Eitt uppátæki sveitarinnar er að taka upp myndband við hvert einasta lag á plötunni víðs vegar um heiminn og gera síðan úr þeim bíómynd í fullri lengd. Þegar hafa tökur farið fram hér á landi, í Kína og Mexíkó og verður forvitnilegt að sjá hvernig endanleg útkoma verður. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira