Norrænt kvikmyndastarf 25. júní 2009 04:30 Kvikmyndir Brúðguminn er ein þeirra mynda sem nýtur góðs af samstarfi Norðurlanda á kvikmyndasviðinu. Margrét Vilhjálmsdóttir og Hilmir Snær í hlutverkum sínum. Mynd Sögn
Norrænu menningarmálaráðherrarnir hafa gert fimm ára samkomulag við Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðinn. Samkomulagið er einn stærsti liðurinn í fjárlögum menningarmálaráðherranna og mun styrkja Norðurlönd í alþjóðlegri samkeppni á sviði kvikmyndagerðar og framleiðslu sjónvarpsefnis. Sjónvarpsáhorfendur og kvikmyndaunnendur á Norðurlöndum geta glaðst yfir víðtækum pólitískum stuðningi við norræna kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerð. Á fundi sem haldinn var í Reykjavík undirrituðu norrænu menningarmálaráðherrarnir og fulltrúar norrænna kvikmyndastofnana og sjónvarpsstöðva á Norðurlöndum nýtt samkomulag við Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðinn. Samkomulagið gildir til loka árs 2014. Fjárhagsáætlun sjóðsins verður áfram sú sama. „Við getum glaðst yfir því að þrátt fyrir fjármálakreppu og niðurskurð í framlögum til menningarmála þá hefur tekist að tryggja rekstur sjóðsins með fimm ára samkomulagi og árlegu fjárframlagi sem nemur u.þ.b. 70 milljónum danskra króna. Við teljum það vera viðurkenningu á starfi sjóðsins. Samstarfslíkanið, sem felur í sér að Norræna ráðherranefndin starfar með bæði norræna kvikmynda- og sjónvarpsgeiranum, er einstakt á alþjóðavettvangi, en það stuðlar að því að viðhalda samkeppnishæfni og gæðum í framleiðslunni“, segir Hanne Palmquist, framkvæmdastjóri Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins. Samkomulagið við Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðinn var undirritað af 17 samstarfsaðilum. Þetta er einstakt, vegna þess að samstarfsaðilar eru svo margir og ólíkir; kvikmyndastofnanir/sjóðir, ríkisútvarpsstöðvar og einkareknar sjónvarpsstöðvar. Katrín Jakobsdóttir, ráðherra menningarmála, er ánægð með samkomulagið. Hún leggur áherslu á að það sé mikilvægur þáttur í hnattvæðingarstefnu forsætis- og menningarmálaráðherranna. „Kvikmyndir og sjónvarp eru einstakir tjáningarmiðlar. Þeir miðla annars vegar list og menningu og hins vegar eru þeir atvinnurekstur og iðnaður. Þannig verður kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslan mikilvægur þáttur í nýsköpun og skapandi iðnaði. Norðurlönd hafa hér mikilvægu hlutverki að gegna. Samkomulagið mun stuðla að því að viðhalda alþjóðlegri samkeppnishæfni þeirra á þessu sviði“, segir Katrín Jakobsdóttir og bætir við: „Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn hefur jafnframt fengið eina milljón danskra króna í aukafjárveitingu til að markaðssetja norrænar kvikmyndir og hæfileikafólk á alþjóðavettvangi.“ Á ráðherrann þá við sérstakt átak til að styrkja dreifingu einstakra kvikmynda sem nú er í undirbúningi. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Fleiri fréttir Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Sjá meira