Árni Johnsen ræktar kalkúna 25. júní 2009 06:00 árni johnsen Hann, og félaga hans Úteyingana, skortir ekki hugmyndaflugið en þeir hafa komið fyrir kalkúnum úti í Bjarnarey. „
Við erum alveg sannfærðir um að þeir séu frá Frakklandi. París. Þeir tala í það minnsta frönsku,” segir Árni Johnsen alþingismaður. Hann, og nokkrir Úteyingar félagar hans, hafa tekið uppá því að koma fyrir sjö kalkúnum í Bjarnarey. Nú þegar þetta spyrst er það í kjölfar fregna um að lundastofninn láti mjög á sjá og draga þurfi úr veiðum á lunda. Árni segir að nú þurfi stærri háfa en segir af og frá að kalkúnninn komi í stað lundans. Það verði seint. „Kalkúnar eru duglegir fuglar. Harðgerir. Ef þeir komast yfir tvær til þrjár vikur eru þeir duglegir að bjarga sér. En það er passað vel upp á þá. Þeir hafa fína aðstöðu, eru þarna í girðingu, hafa skýli og fá fóður. Þetta er allt mjög óformlegt. Þetta eru nokkrir Úteyingar sem hafa gaman af að prófa hlutina,“ segir Árni léttur í bragði. Hann lýsir því að mjög gaman hafi verið að því að fylgjast með þegar þeir voru hífðir upp í eyna, hundrað og tuttugu metra, þegar þeir stungu hausnum út og virtu veröldina fyrir sér. Sannarlega önnur sýn á tilveruna en þeir hafa lokaðir inni í kalkúnabúum. „Neinei, við höfum engar hugmyndir um sérstaka framtíð í þessu eða stórtækar aðgerðir. Þetta er, eins og sagt er á kaldrifjuðu máli: Þetta er ein veisla.“- jbg
Mest lesið Ekki fyrsti fótboltamaður Binna: „Við getum alveg hist aftur og riðið“ Lífið Móðirin hljóp frá þremur börnum og „fór í Kanann“ Lífið Vance á von á barni Lífið Ótrúlegur dagur Vignis: Lottóvinningur, 180 í pílu og sigur á Carlsen Lífið Heiða og Hildur djömmuðu með Breiðhyltingum Lífið Vesturbæingar blótuðu þorrann langt fram á nótt Lífið Valdi sér fylkingu í Beckham-deilunum Lífið Halla T meðal sofandi risa Menning Kjólasaga Brooklyns loðin Tíska og hönnun Eldri bróðir lagði línur að lífinu í New York Lífið Fleiri fréttir Vance á von á barni Heiða og Hildur djömmuðu með Breiðhyltingum Ekki fyrsti fótboltamaður Binna: „Við getum alveg hist aftur og riðið“ Ótrúlegur dagur Vignis: Lottóvinningur, 180 í pílu og sigur á Carlsen Vesturbæingar blótuðu þorrann langt fram á nótt Valdi sér fylkingu í Beckham-deilunum Móðirin hljóp frá þremur börnum og „fór í Kanann“ „Ég hef aldrei séð dansandi poka“ Eldri bróðir lagði línur að lífinu í New York Opinberar erjur Beckham-fjölskyldunnar: „Ég vil ekki sættast við fjölskyldu mína“ Fagna tíu árum af ást Þekkja Kringlugestir borgarstjórann? Aron Mola ástfanginn í bíó Krútteyjurnar Ischia og Sikiley: Ástu leist ekki á einnar evru húsin Rybak snýr aftur en frægir bræður sniðganga Havana-heilkennið heldur áfram að kveikja samsæriskenningar Stjörnulífið: Áslaug náði ekki að tala Trump til „Kynlíf okkar hjóna hefur breyst mikið síðustu ár“ Greipur telur Trump hafa ruglast á Grænlandi og Íslandi „Ég er til í að gera allt svo ég þurfi ekki að grafa þriðja barnið mitt í viðbót“ Krakkatía vikunnar: Fjöll, friðarsúlan og geimurinn Auðunn Lúthersson selur austurbæjarperlu Skautafjör á Laugarvatni í dag Fréttatía vikunnar: Bruni, Grænland og handbolti Íþróttapar keypti einbýlishús í Hafnarfirði á 162 milljónir Svona heldur Rakel sér unglegri Gugga í gúmmíbát og Patrekur Jaime í eina sæng „Átti ekki efni á Icelandair til Tene en hér er ég“ „Við náðum að nýta hverja einustu stund með pabba“ „Þessu hef ég verið háður býsna lengi“ Sjá meira