Katie sendir Peter tóninn á Twitter 25. júní 2009 02:15 Illindi Skilnaður Peters André og Katie Price virðist ætla að verða hálfógeðfelldur. „
Við höfum tekið þá ákvörðun að skilja og við vonum að fjölmiðlar virði þá ósk okkar að gera það í kyrrþey, fjarri kastljósinu.“ Á þessum nótum var yfirlýsingin sem Peter André og Katie Price sendu bresku pressunni þegar þau ákváðu að skilja eftir rúmlega þriggja ára hjónaband. Óhætt er hægt að fullyrða að hvorki breskir fjölmiðlar né Peter eða Katie hafi virt þessa yfirlýsingu því stanslausar fréttir af þessum fyrrverandi hjónakornum hafa borist undanfarna daga. Það nýjasta í málinu er að Katie kallar Peter öllum nöfnum á twitter-síðu sinni sem tæplega tvö hundruð þúsund aðdáendur lesa daglega. Skilaboðin hefjast reyndar á því að Katie lýsir því yfir að hún geti ekki beðið eftir að sjá börnin sín aftur. En hún skildi þau eftir hjá fyrrum eiginmanni sínum þegar hún hélt áleiðis til Ibiza þar sem hún hefur hvílt í örmum ókunnugra manna. Svo hefst reiðilesturinn og Katie hellir úr skálum reiði sinnar yfir André, kallar hann slíkum nöfnum að jafn siðprútt blað og Fréttablaðið getur ekki haft þau eftir. Ljóst er að ekki eru öll kurl komin til grafar enn í þessum skilnaði.
Mest lesið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Bíó og sjónvarp Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira