Lífsýni úr 300 þúsund Íslendingum varðveitt 18. maí 2009 05:45 Til eru sýni úr 300 þúsund Íslendingum og nær safnið aftur til um 1935. Í safninu eru aðeins sýni af einstaklingum sem eitthvað hefur verið fjarlægt af, til dæmis varta eða fæðingarblettur, en læknar senda sýnin til rannsóknar á Landspítalann og um leið er hluti varðveittur í lífsýnasafninu. Fréttablaðið/stefán
Varðveitt eru lífsýni úr um 300.000 Íslendingum í lífsýnasafni sem að stærstum hluta er geymt á Landspítalanum en einnig á Akureyri og í lítilli rannsóknarstofu í einkaeigu á höfuðborgarsvæðinu. Ekki eiga allir Íslendingar sýni í safninu, aðeins þeir sem eitthvað hefur verið fjarlægt af. Elsta sýnið er frá því um 1935. „Þegar fólk kemur til læknis og eitthvað er fjarlægt, hvort sem það er varta af húðinni, heilt lunga eða leg, þá er gerð sjúkdómsgreining og svo er varðveitt pínulítið sýni um óákveðinn tíma til að hægt sé að skoða sýnið ef sjúkdómur kemur aftur upp hjá þessum sjúklingi,“ segir Jóhannes Björnsson, yfirlæknir á Landspítalanum og formaður stjórnar Lífsýnasafnsins. Sýnin eru einn sinnum tveir sentimetrar að stærð og eru varðveitt í læstum hirslum. Þau eru eingöngu notuð í tvenns konar tilgangi; í nafnlausum vísindarannsóknum og til að þjónusta sjúklinga. „Varðveittur er lítill hluti af hverju sýni til að geta þjónustað viðkomandi einstakling. Ef hann fær til dæmis illkynja meinsemd í húð og fæðingarblettur hefur verið tekinn fyrir þrjátíu árum er sýnið skoðað aftur,“ útskýrir Jóhannes. „Læknir, sem fjarlægir til dæmis blett af húðinni, sendir hingað sýni og við gerum á því greiningu og sendum honum svar. Síðan er hluti af sýninu varðveittur hér,“ segir hann. Sýnin eru varðveitt þannig að þau eru „fixuð eins og það er kallað, í formalíni. Það drepur allan vef og því eru þau gerð óvirk. Síðan eru þau steypt inn í vax,“ segir Jóhannes og tekur fram að sýni séu aðeins tekin af veiku fólki. Á Íslandi eru í gildi lög frá árinu 2000 þar sem kveðið er á um söfnun, meðferð og aðgang að lífsýnum í lífsýnasafni. Jóhannes segir að slík söfn séu í þúsundatali um allan heim en það sem geri safnið hér á landi sérstakt sé að Íslendingar séu svo fámennir að allt safnið sé nánast á sama stað. Samkvæmt lögum er gert ráð fyrir ætluðu samþykki sjúklings fyrir því að lífsýni verði vistað í lífsýnasafni enda sé getið um það í almennum upplýsingum frá heilbrigðisstarfsmanni eða heilbrigðisstofnun. Sá sem lífsýnið er úr getur hvenær sem er afturkallað samþykki sitt og skal lífsýninu þá eytt.ghs@frettabladid.is
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Fleiri fréttir „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Sjá meira