Lífið

Íslendingur farðar fyrir Úlfamynd

Stefán Jörgen hitti hvorki Benicio Del Toro né Anthony Hopkins sem leika í  The Wolf Men en var hluti af förðunarliði myndarinnar í Englandi.
Stefán Jörgen hitti hvorki Benicio Del Toro né Anthony Hopkins sem leika í The Wolf Men en var hluti af förðunarliði myndarinnar í Englandi.

Íslenski förðunarmeistarinn, Stefán Jörgen, brá heldur betur í brún þegar hringt var í hann fyrir nokkru og hann beðinn um að koma til starfa við Hollywood-kvikmyndina The Wolf Man. Sá sem bað sérstaklega um Stefán heitir Rick Baker og er einn sá allri besti í þessum bransa, hefur hlotið ótal verðlaun í kvikmyndabransanum, meðal annars sex Óskarverðlaun. Baker er því hálfgerð hetja í förðunarbransanum hvað kvikmyndir varðar.

Stefán viðurkennir að hann hafi fyrst haldið að símtalið væri eitthvað djók en kona frá Pinewood-myndverinu í Beckingham-skíri var hinum megin á línunni. „Ég var bara spurður hvort ég væri laus í vinnu, Baker hefði beðið sitt fólk um að athuga hvort ég væri til,“ segir Stefán sem var nývaknaður þegar kallið barst og var því ekki viss um hvort hann væri að dreyma eður ei.

Svo reyndist ekki vera og förðunarmeistarinn hélt utan til Englands. Hann upplýsir þó fljótlega að hann hafi ekki hitt neina af þeim stórstjörnum sem leika í The Wolf Man en meðal þeirra eru Óskarsverðlaunahafarnir Benicio Del Toro og Anthony Hopkins auk barnabarns Charlie Chaplin, Geraldine Chaplin. „Nei, nei, það gerði heldur ekkert til, þetta var bara fyrst og fremst skemmtilegt en um leið ákaflega stressandi. Það er svolítið stress við svona stórar myndir,“ segir Stefán en hann hefur þó áður fengið að bragða á Hollwyood-stórmyndum því Stefán var hluti af förðunarliði Flags of our Fathers og Letters from Iwo Jima sem Clint Eastwood tók upp hér á landi.

Stefán hefur engu að síður ekki hugmynd um hvort hann muni endurtaka þetta í bráð. „Kannski, kannski ekki. Það kemur bara í ljós.“- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.