Innlent

Blaðamannafundur vegna Icesave á morgun

Peningur í baukinn.
Peningur í baukinn.

Blaðamannafundur vegna Icesave deilunnar verður haldin á morgun samkvæmt aðstoðarmanni Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Viðræður vegna Icesave deilunnar hafa staðið yfir að undanförnu að hans sögn og verður þeim viðræðum áfram haldið í kvöld.

Þess er því að vænta að blaðamannafundur verði haldin á morgun en nákvæm tímasetning hefur ekki verið ákveðin.


Tengdar fréttir

Byrjum að borga eftir sjö ár

Í þeim samningum sem nú eru í sjónmáli í Icesave deilunni felst að vextirnir á lánum vegna skuldbindinga Íslands verða 5,5 prósent á ári. Ekki þarf að byrja að borga af láninu fyrr en eftir sjö ár en vextir reiknast af því á meðan. Skuldbindingarnar nema 650 milljörðum í heildina, samkvæmt heimildum fréttastofu. Ekki er ljóst til hve langs tíma lánið er.

Áfangi í Icesave-deilu kynntur í ríkisstjórn

Möguleg lausn á Icesave-deilunni verður kynnt í ríkisstjórn í dag. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins verður tekin afstaða til þess hvort sú leið sé fær eða ekki. Það þarf þó ekki að þýða að lausn finnist á deilunni því ef íslensk stjórnvöld hafna þessari leið eru samningar enn þá opnir.

Icesave lánið er til 15 ára

Skuldin sem ríkissjóður þarf að gangast í ábyrgð fyrir vegna Icesave reikninganna á að vera fullgreidd að fimmtán árum liðnum. Lánið nemur samkvæmt heimildum fréttastofu 640 milljörðum króna en byrjað verður að greiða af því eftir sjö ár. Lánskjörin er 5,5% vextir.

Krefjast þess að leynd verði aflétt af Icesave málinu

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins krafðist þess í upphafi þingfundar í dag, að Icesave málið yrði þegar tekið fyrir á dagskrá Alþingis og leynd yfir málinu verði aflétt. En trúnaður ríkir um þau mál sem tekin eru fyrir í utanríkismálanefnd þar sem Sigmundur Davíð á sæti. Sigmundur sagði að Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hafi sagt ósatt í síðustu viku, þegar hann sagði að samningaviðræður um Icesave væru að hefjast, en nú kæmi í ljós að samningsniðurstaða lægi fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×