Innlent

Áfangi í Icesave-deilu kynntur í ríkisstjórn

Möguleg lausn á Icesave-deilunni verður kynnt í ríkisstjórn í dag. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins verður tekin afstaða til þess hvort sú leið sé fær eða ekki. Það þarf þó ekki að þýða að lausn finnist á deilunni því ef íslensk stjórnvöld hafna þessari leið eru samningar enn þá opnir.

Deila um Icesave-reikningana hafa staðið lengi yfir. Upphaflega átti að ljúka viðræðunum í síðasta mánuði. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir þær hafa tafist vegna ástandsins í Bretlandi. Þar vísar fjármálaráðherra bæði til vandræða Verkamannaflokksins breska og versnandi efnahagsástands þar í landi, sem hefur ekki liðkað fyrir viðræðunum.

Steingrímur segist enn bjartsýnn á að ásættanleg niðurstaða náist og að hún verði betri en fyrstu tölur gáfu til kynna. Fleiri ráðherrar sem Fréttablaðið ræddi við tóku í sama streng og sögðu verstu mögulegu útkomu viðræðnanna alltaf vera betri niðurstöðu, fyrir Íslendinga, en upphaflega var ætlað.

Deilan um Icesave í Bretlandi hefur snúist um hvert raunverulegt virði eigna Landsbankans þar í landi sé og hvaða vaxtafyrirkomulag eigi að vera á samningum. Þá eru einnig áhöld um hvernig greiðslum skuli háttað.

Samninganefndir breskra og hollenskra stjórnvalda eru staddar hér á landi. Þær funduðu með íslensku nefndinni fram á kvöld í gær.

Sáttatillagan verður einnig kynnt í utanríkismálanefnd og þingflokkum stjórnarflokkanna í dag.

- bþs, kóp, kh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×