Vill leiða Frjálslynda í Reykjavík 12. febrúar 2009 11:11 Viðar Guðjohnsen
Viðar Guðjohnsen, formaður Landssambands ungra frjálslyndra, sækist eftir að leiða lista Frjálslynda flokksins í Reykjavík suður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Viðari. Þar segir Viðar meðal ananrs að horfurnar séu ekki góðar fyrir íslensku þjóðina sem nú sé á barmi gjaldþrots. „Skuldir heimilinna hafa margfaldast og svo virðist sem aðeins fámenn elíta hafi hagnast á þessu svokallaða íslenska efnahagsundri. Sjálfstæði þjóðarinnar hefur aldrei verið í meiri hættu og í þeim málum virðist sem meðvirknin, blindnin og atkvæðaleitin sé stundum skynseminni yfirsterkari," segir Viðar í yfirlýsingunni. Þá segir hann að atvinnuleysið hafi aukist og því alger nauðsyn að koma með róttækar lausnir til þess að sporna gegn stórfelldum landflótta. „Lausnirnar sem ég mun leggja áherslu á felast meðal annars í því að stuðla að virkara lýðræði, tryggja að Ísland verði fullvalda um ókomna tíð, afnema rétt örfárra til þess að veiða fiskinn í sjónum, auka smábátaveiðar, krefjast þess að fiskvinnsla fari fram í auknum mæli á Íslandi, veiða hvali, vernda íslenska framleiðslu, styrkja smáiðnað og hagræða löggjöf þannig að smáfyrirtæki blómstri. Á hremmingartímum sem þessum kemur mikilvægi íslenska landbúnaðarins í ljós. Það verður ekki litið framhjá því að íslensk matvælaframleiðsla er ekki bara hagkvæm heldur þjóðaröryggismál. Ráðamenn þjóðarinnar þurfa að spyrja sig um sjálfbærni Íslendinga til matvælaframleiðslu ef kemur til styrjaldar, heimssóttar eða alheimskreppu. Frjálslyndi flokkurinn hefur í áraraðir barist fyrir því að íslenskur almenningur hafi jafnan rétt á fiskveiðum við íslandsmið, fyrir auknu réttlæti og fyrir róttækum umbótum hjá eldri borgurum. Ég hef því ákveðið að bjóða mig fram til að leiða lista Frjálslynda flokksins í Reykjavíkurkjördæmi Suður í næstu Alþingiskosningum."
Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent „Fólk er ekki heimskt“ Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Breiðholti Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Sjá meira