Innlent

Rólegt hjá lögreglu

Frá mótmælunum við Hótel Nordica.
Frá mótmælunum við Hótel Nordica. MYND/Jakob Fannar

Nóttin var róleg hjá lögreglu um land allt. Fjölmörg þorrablót fóru fram í gærkvöldi og virðast þau hafa farið vel fram.

Í Reykjavík kom hópur mótmælenda, um sjötíu manns, saman við Hótel Nordica þar sem árshátíð Seðlabankans fór frma. Lögreglan var á svæðinu en mótmælin voru friðsæl en hávaðasöm þar sem fólkið barði á potta og trommur.

Lögreglan í Borgarnesi hafði afskipti af einum ökumanni sem grunaður var um fíkniefnaakstur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×