Deilt um hvar Jón Ólafsson átti heima 23. desember 2009 04:00 Jón Ólafsson Hefur verið búsettur í Bretlandi meira eða minna frá 1998.Fréttablaðið/anton
Athafnamaðurinn Jón Ólafsson hefur stefnt Skúla Eggerti Þórðarsyni ríkisskattstjóra og Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra fyrir dóm fyrir hönd íslenska ríkisins. Krefst Jón þess að úrskurður ríkisskattstjóra frá 2003 þess efnis að Jón skyldi greiða fullan skatt á Íslandi frá árinu 1998 verði felldur úr gildi og það viðurkennt að hann hafi frá því ári aðeins borið takmarkaða skattskyldu hérlendis. Málið snýst um það hvar Jón var búsettur lögum samkvæmt frá árinu 1998, og hvar honum bar því að greiða skatt. „Ég flutti úr landi í september 1998 með konu og börn. Þau fóru í skóla þar, við festum kaup á húsi og ákváðum að búa í Englandi. Ég vil bara fá viðurkenningu á að svo hafi raunverulega verið,“ segir Jón. Ríkisskattstjóri komst sem áður segir að því í desember árið 2003 að Jón ætti svokallaða heimilisfesti á Íslandi samkvæmt skattalögum og bæri því fulla skattskyldu hérlendis. Þessum úrskurði mótmælir Jón harðlega í stefnunni. Til að eiga heimilisfesti á tilteknum stað sé nóg að hafa þar bækistöð sína, heimilismuni og svefnstað og dvelja þar að jafnaði í tómstundum. Þetta hafi átt við Bretland í hans tilfelli, enda hafi hann dvalið þar megnið úr hverju ári, börn hans hafi sótt þar skóla og þau hafi því sannarlega haft þar fasta búsetu, þótt Jón og kona hans hafi einnig átt húsnæði á Íslandi. Jón hafði lögheimili á Íslandi fram í nóvember 2002, en fékk því þá breytt afturvirkt til 1. september 1998. Í stefnunni er bent á að mat Ríkisskattstjóra á heimilisfesti Jóns og fjölskyldu hafi breyst eftir að ákveðið var að taka meint skattalagabrot hans til rannsóknar 2002. Árið 2000 hafi Jón verið álitinn til heimilis í Bretlandi en sú afstaða hafi síðan breyst árið 2003. Enn fremur er bent á ólíka meðhöndlun sambærilegra mála hjá embættinu, þar sem konu sem búsett var erlendis og var með börn þar í skóla var meinað að greiða skatt á Íslandi þrátt fyrir að hún ynni fyrir íslenskt fyrirtæki. Í kjölfar úrskurðarins hefur Jóni verið gert að greiða á fjórða hundrað milljónir króna í skatta hérlendis og sótt hefur verið að honum fyrir dómi vegna meintra skattsvika. Því máli hefur verið vísað frá dómi vegna formgalla. En hvað gerist ef Jón hefur sigur í þessu máli? „Þá er ljóst að skattyfirvöld höfðu ekki lögsögu yfir mér þegar þau fóru í mig,“ segir Jón. Með því væri búið að opna á þann möguleika að Jón gæti fengið öllum ákvörðunum sem byggja á úrskurðinum hnekkt. Stefnan var birt í gær og er þingfesting áætluð 7. janúar. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira