Flugráðsveislan kostaði 207 þúsund krónur 23. desember 2009 03:00 Kristján L. Möller Samgönguráðherra skipaði núverandi sex manna flugráð á árinu 2007.Fréttablaðið/Vilhelm
Jólakvöldverður flugráðs í Perlunni á fimmtudag í síðustu viku kostaði ríkið 207 þúsund krónur að sögn Gunnlaugs Stefánssonar, formanns ráðsins. „Hvar sem ég starfa og fæ einhverju ráðið og starfsfólki/nefndarfólki eru þökkuð vel unnin störf með því að gera sér dagamun, þá skuli það gert samkvæmt sæmilegri gestrisni og skikkan meðal annars um rækt við fjölskyldugildi eins og aðstæður leyfa og við á," segir í svari Gunnlaugs við fyrirspurn Fréttablaðsins. Í flugráði sitja samtals sex manns. Hins vegar voru tuttugu gestir á jólahlaðborðinu. „Sex starfsmenn stjórnsýslunnar undirbúa ásamt formanni fundi ráðsins og taka þátt í störfum þess, en fá ekki greitt sérstaklega fyrir það og er sú vinna oft innt af hendi utan hefðbundins vinnutíma," segir í svari Gunnlaugs. Hann ítrekar það sem hann sagði í Fréttablaðinu í gær að ríkið greiði þremur af sex flugráðsmönnum ekki fyrir setu í ráðinu. Það séu fulltrúar sem tilnefndir séu af atvinnulífinu. „Samkvæmt tillögu minni fyrir tveimur árum í anda hógværs viðurgjörnings við fundarhöld ráðsins var ákveðið að við gerðum okkur dagamun vegna fundar í desember og neyttum kvöldverðar á kostnað ráðsins ásamt mökum," upplýsir Gunnlaugur. Kristján L. Möller samgönguráðherra skipaði núverandi flugráð. Þegar óskað var eftir viðbrögðum ráðherrans í gær vegna veisluhalda flugráðs kvaðst hann ekki hafa kynnt sér málið og því ekki vilja tjá sig um það að svo stöddu.- gar
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Fleiri fréttir Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Sjá meira