Ingó Veðurguð í Wipeout 17. september 2009 06:00 Keppinautar í Wipeout Ingó Veðurguð og Alexandra Helga Ívarsdóttir fá verðuga keppinauta í Wipeout því meðal þátttakenda verða þeir Ívar Guðmundsson og Egill „Gillz“ Einarsson, landsþekktir fyrir sitt líkamlega atgervi. Ingó segist ekki nenna í neina hetjukeppni, hann ætli þó að halda uppi heiðri hinna tágrönnu einstaklinga. „
Ég er svolítið spennt fyrir þessu, smá hrædd líka en aðallega spennt," segir Alexandra Helga Ívarsdóttir, ungfrú Ísland árið 2008. Hún verður meðal þátttakenda í sérstakri „celebrity"-útgáfu af Wipeout sem Stöð 2 hyggst sýna frá í vetur. Mikill áhugi virðist vera á þessum Þrautakóngi því rúmlega þrjú þúsund Íslendingar sóttu um að komast í þáttinn í skráningu á vísir.is. „Ég þurfti ekkert sérstaklega langan umhugsunarfrest þegar haft var samband við mig, ég sló bara til strax," segir Alexandra sem hefur aldrei komið til Argentínu áður og það skipti miklu máli við ákvörðunartökuna. „Og svo horfði ég töluvert á þættina í vetur. Ég kvíði eiginlega mest fyrir rauðu boltunum, þeir líta svakalega út, allavega miðað við það sem maður hefur séð í sjónvarpinu." Alexandra fær harða samkeppni í þessum sérstaka celebrity-þætti því fitness-kóngarnir Ívar Guðmundsson og Egill „Gillz" Einarsson verða meðal þátttakenda. „Ívar er náttúrlega í frábæru formi en líkamlegt ástand á þeim þykka er rosalegt um þessar mundir, ég er í raun þrautþjálfaður íþróttamaður. Ívar verður klárlega einn af mínum helstu keppinautum en hann á ekki eftir að hafa roð við mér," segir Egill, sjálfsöruggur að venju. „Ég held reyndar að það hafi verið mistök að velja mig í þennan þátt, því aðrir munu bara líta út eins og kjánar við hliðina á mér." En Egill fær væntanlega harða samkeppni frá manni sem þekkir lítið annað en sigur eftir árangur sumarsins. Því Ingólfur Þórarinsson, hjartað í miðju Selfoss-liðsins sem vann 1. deildina í knattspyrnu og Veðurguð með meiru, verður einnig meðal keppenda. „Mér líst bar ágætlega á þetta, ég veit reyndar ekkert hvað ég er að fara út í, er þetta eitthvað hættulegt?" spyr Ingó sem vill að sjálfsögðu komast hjá því að meiðast alvarlega enda úrvalsdeildarbarátta fram undan næsta sumar og því um að gera að halda sér heilum. „Ég nenni ekki að fara í einhverju hetjukeppni en maður verður auðvitað halda uppi heiðri hinna tágrönnu einstaklinga," segir Ingó og bætir því við að það sé ekki nóg að vera bara sterkur í svona keppni, úthaldið leiki ekkert síður stórt hlutverk
Mest lesið Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Lífið „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Tíska og hönnun Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Lífið Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Lífið Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Lífið Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Lífið Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Lífið Seyfried syrgir Finn sinn Lífið Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Lífið Ekki ofpeppast í áfenginu, plastpoka á táslurnar og forðast tjörnina Lífið samstarf Fleiri fréttir Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Sjá meira