H1N1: Meiri smithæfni en í „venjulegri" inflúensu 13. maí 2009 11:56
Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 5.935 í morgun í 31 ríki í heiminum samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB. Þar á meðal eru tvö staðfest tilfelli í Finnlandi sem tilkynnt var um í gær. Í tilkynningur frá Sóttvarnalækni og Almannavarnadeild er bent á að það með hafi flensan stungið sér niður alls staðar á Norðurlöndum nema á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum. Staðfest dauðsföll vegna inflúensunnar eru orðin 63 talsins, langflest í Mexíkó eða 58. Þrjú dauðsföll eru staðfest í Bandaríkjunum, eitt í Kanada og eitt í Kosta Ríka. „Ljóst er að veiran hefur dreifst til nær allra heimsálfa og smit innan landa hefur verið staðfest en ekki í miklu mæli. Flestir hafa greinst í Bandaríkjunum, eða 3.009, en sífellt eru fleiri lönd að bætast í hópinn," segir ennfremur. Vísindamenn hafa ályktað að smithæfni hinnar nýju inflúensuveiru sé heldur meiri en smithæfni árstíðabundinnar inflúensu. Af óútskýrðum ástæðum virðast sýkingar af hinni nýju veiru yfirleitt ekki vera alvarlegar utan Mexíkó en þar í landi virðist dánartíðnin vera hærri en sést í árstíðabundinni inflúensu. Í Mexíkó er dánartíðni hinnar nýju inflúensu talin vera á bilinu 0,4-1,5% en dánartíðni árstíðabundinnar inflúensu er talin vera um 0,1%. Til samanburðar má nefna að dánartíðnin í spænsku veikinni var talin vera á bilinu 2-3% en í heimsfaraldri 1957 og 1967 var dánartíðnin undir 0,2%. Of snemmt er að spá fyrir um hversu miklum skaða hin nýja veira mun valda í Evrópu en búast má við að hún dreifist um öll lönd. Hér á landi hefur veiran ekki greinst enn sem komið er og enginn lagst inn á Landspítalann með alvarleg inflúensulík einkenni. Viðbúnaðarstig hér á landi er óbreytt frá því sem verið hefur. Læknar eru hvattir til að senda sýni frá sjúklingum með inflúensulík einkenni til greiningar og hefja meðferð með veirulyfjum ef sjúklingur er með alvarleg einkenni. Ekki er ráðlagt að setja einstaklinga á fyrirbyggjandi meðferð að svo stöddu. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur enn ekki lýst yfir heimsfaraldri en Íslendingar eru með framvirkan samning um kauprétt á bóluefni gegn heimsfaraldri inflúensu. Um 5-6 mánuði tekur að markaðssetja nýtt inflúensubóluefni Í hönd fer vinna á vegum almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og sóttvarnalæknis við að endurskoða og betrumbæta fyrirliggjandi viðbragðsáætlun gegn heimsfaraldri. Í gangi er vinna við að kanna birgðastöðu nauðsynjavara hér á landi.Meiri smithæfni en í „venjulegri" inflúensu Í gangi er vinna við að kanna birgðastöðu nauðsynjavara hér á landi.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Fleiri fréttir Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Sjá meira