Innlent

Kópavogur setur sér siðareglur

Gunnar Birgisson er bæjarstjóri í Kópavogi. Mynd/ Vilhelm.
Gunnar Birgisson er bæjarstjóri í Kópavogi. Mynd/ Vilhelm.
Kópavogsbær hefur sett sér siðareglur sem gilda um kjörna bæjarfulltrúa og stjórnendur hjá bæjarfélaginu. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti siðareglurnar einróma á fundi sínum í gær. Í fréttatilkynningu frá bæjarstjórn kemur fram að Kópavogur sé fyrsta sveitarfélagið á Íslandi til að setja sér slíkar siðareglur.

Í fréttatilkynningu frá Kópavogsbæ kemur fram að markmiðið með siðareglunum sé að skilgreina það hátterni sem ætlast sé til af bæjarfulltrúum og stjórnendum í störfum þeirra fyrir Kópavogsbæ og upplýsa íbúa um þær kröfur sem gerðar eru til þeirra. Samkvæmt siðareglunum beri þeim meðal annars að gæta almannahagsmuna og starfa fyrir opnum tjöldum á málefnalegum forsendum. Þeir megi hvorki hvetja eða aðstoða kjörinn fulltrúa eða starfsmann Kópavogsbæjar við að brjóta reglurnar né beita réttindum eða aðstöðu sem fylgja embætti þeirra í þágu einkahagsmuna sinna eða annarra. Jafnframt eru ákvæði í siðareglunum um gjafir og fríðindi, hagsmunaárekstra, ábyrgð í fjármálum og þjónustu við almenning.

Siðareglur kjörinna bæjarfulltrúa og stjórnenda hjá Kópavogsbæ taka að miklu leyti mið af siðareglum sveitarstjórnarþings Evrópuráðsins auk Handbókar Evrópusambandsins um siðareglur á sveitarstjórnarstigi. Siðareglur Kópavogsbæjar voru unnar í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Siðareglurnar fela í sér leiðbeiningar um það hvernig æskilegt er að kjörnir bæjarfulltrúar og stjórnendur bregðist við þegar siðferðileg álitamál koma upp í störfum þeirra. Í siðareglunum birtast gildi sem eiga að einkenna samskipti innan stjórnsýslu Kópavogsbæjar og þjónustu sem það veitir.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×