Næsta vika sker úr um líf sáttmálans 24. október 2009 03:45 Mikil bjartsýni ríkti þegar skrifað var undir stöðugleikasáttmálann 25. júní. Oft virtist ætla að sliltna upp úr samningum en þeir náðust að lokum. Nú er óvíst hvort þeir halda.fréttablaðið/pjetur „
Kjarasamningur okkar er nú í þriðja sinn á þessu ári kominn í uppnám og langlundargeð gagnvart úrræðaleysi stjórnvalda í nánast öllum málum er að þrotum komið. Allt eins gætum við staðið frammi fyrir því, að þrátt fyrir náið samstarf samtaka launafólks og atvinnurekenda í þessari glímu, geti komið til uppsagnar kjarasamninga í byrjun næstu viku.“ Svo mælti Gylfi Arngrímsson í setningarræðu sinni á ársfundi Alþýðusambands Íslands (ASÍ) í gær. Gylfi hefur verið mjög gagnrýninn á ríkisstjórnina, telur hana ekki hafa staðið við þau fyrirheit sem gefin voru í stöðugleikasáttmálanum. Icesave hafi tekið allan tíma yfirvalda og fjöldi þjóðhagslega mikilvægra verkefna hafi setið á hakanum. Stjórnvöld hafa fundað með samninganefnd ASÍ og framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins (SA) um stöðugleikasáttmálann. Gylfi segir lítið hafa þokast í þeim viðræðum, fulltrúar vinnumarkaðarins hafi dregið þá niðurstöðu að stjórnin hafi efnt afar fátt sem lagt hafi verið upp með í sáttmálanum. „Eftir að hafa setið að þjarki í tvær vikur er ljóst að afar lítið hefur þokast í samkomulagsátt, hvorki við ríkisstjórnina né Seðlabankann.“ Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, er einnig gagnrýninn á stjórnvöld. Á opnum fundi SA um sáttmálann sagði hann nauðsynlegt að hleypa lífi í fjárfestingar, bæði innlendra og erlendra aðila, til að koma landinu út úr kreppunni. Þá væri vaxtastig Seðlabankans allt of hátt og gjaldeyrishöft hamlandi. Þetta skapaði hættuna á nýrri kreppu sem gæti verið enn dýpri. Landsframleiðslan gæti dregist saman um að minnsta kosti sex prósent á næsta ári. Á þriðjudaginn þarf að taka ákvörðun um hvort kjarasamningar SA og ASÍ verða framlengdir. Bæði Vilhjálmur og Gylfi kalla eftir aðgerðum stjórnvalda fyrir þann tíma. Annars geti þurft að segja samningum upp með tilheyrandi óróa á vinnumarkaði.
Mest lesið Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Innlent Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Innlent Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Vann 131 milljón króna á kjördegi Innlent Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Innlent Icelandair enn og aftur í vandræðum Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent Fleiri fréttir Lokatölur í Sveitarfélaginu Hornafirði: Framsókn bætir við sig og meirihlutinn fallinn Miðflokkur tapar tveimur í Grindavík Lokatölur í Suðurnesjabæ: Meirihlutinn heldur velli Fyrstu tölur í Garðabæ: Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig manni E-listinn tveimur færri en meirihlutinn heldur í Vogum Lokatölur í Húnaþingi vestra: N-listinn skákaði Framsókn Meirihlutinn á Akureyri fallinn „Það er ekki eftirspurn eftir Guðmundi Árna lengur“ Fyrstu tölur í Hafnarfirði: Meirihlutinn heldur þvert á spár Halla hlaut flest atkvæði í Fljótsdalshreppi Gísli Gunnar efstur í Grýtubakkahreppi Listi sveitarstjórans með flesta fulltrúa Í áfalli yfir fyrstu tölum úr Kópavogi Fyrstu tölur úr Kópavogi: Sjálfstæðisflokkur einn í meirihluta Sjálfkjörin í Kjósarhreppi Lokatölur úr Ásahreppi: Ísleifur og Helga efst með 86 atkvæði Nágrannaslagur í Vesturbænum 94 prósenta kjörsókn í Árneshreppi Fengu boð í grillveislu en ekki að kjósa Lokatölur úr Skaftárhreppi: Meirihlutinn kolfallinn Aðalsteinn verður áfram sveitarstjóri Svalbarðsstrandarhreppur fyrstur til að birta lokatölur Vann 131 milljón króna á kjördegi Mynda Hildur og Pétur meirihluta eftir allt saman? Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Eftirlitsmenn á vegum Evrópuráðsins fylgjast með kosningunum Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Kjördagur runninn upp Sjá meira