Bubbi bakkar út úr auglýsingu Símans 2. júlí 2009 06:00 Auglýsing Símans og Tónlistar.is með lagi Bubba, Rómeó og Júlía, hefur verið tekin úr umferð.
Lag Bubba Morthens, Rómeó og Júlía, hefur verið tekið út úr nýrri auglýsingaherferð Símans og Tónlistar.is að beiðni Bubba. Í auglýsingunum syngja íslensk ungmenni hin ýmsu lög, þar á meðal Rómeó og Júlía. Engilbert Hafsteinsson, framkvæmdastjóri D3 sem rekur Tónlist.is, segist hafa fengið skriflegt leyfi frá öllum lagahöfundunum um að fá að nota lögin án endurgjalds og allir hafi gefið samþykki sitt, þar á meðal Bubbi. Honum hafi síðan snúist hugur og gefið upp þá ástæðu að lagabúturinn hafi verið tveimur sekúndum of langur í auglýsingunni, eða sjö sekúndur í stað fimm. Páll Eyjólfsson, umboðsmaður Bubba, segir að málið snúist um það hvort það sé Tónlist.is eða Síminn sem sé að auglýsa íslenska tónlist í þessari nýju herferð. „Það er allur munur á því hvort plötuverslun er að auglýsa vöruna í búðinni sinni eða hvort fyrirtæki er að nýta sér íslenska tónlist í ímyndarherferð,“ segir hann. „Bubbi hefur alla tíð passað upp á réttinn sinn og við viljum kanna hvort þetta er ekki allt samkvæmt bókinni.“ Engilbert segir að fyrst og fremst sé verið að auglýsa vörur Tónlistar.is í auglýsingunum. „Eins og við lýstum fyrir útgefendum er þetta eins og Síminn hafi keypt gjafabréf af okkur og fari út í búð og gefi þau. Gjafabréfin eru auðvitað frá okkur og það er verið að auglýsa okkar vöru. Ég veit ekki hvernig tónlistarveita á að auglýsa þjónustuna sína ef hún má ekki auglýsa lögin.“ Hann segir að Bubba-auglýsingin verði ekki sett aftur í umferð. Úr nægum efniviði sé að moða enda hafi nýjar auglýsingar með fjölda laga verið teknar upp um síðustu helgi. Samkvæmt samningi Símans og Tónlistar.is fá lagahöfundarnir ekkert borgað aukalega fyrir notkun laganna. Í staðinn var ákveðið að hafa samband við hvern og einn þeirra og biðja um leyfi. „Við fórum fram á að haft yrði samband við alla höfundana því við erum að gæta hagsmuna laga- og textahöfunda,“ segir Jenný Davíðsdóttir, skrifstofustjóri Stefs, og segir ekkert óeðlilegt við vinnubrögð Símans og Tónlistar.is. „Þetta er ekki eins og hvert annað fyrirtæki því þetta er fyrirtæki sem er að selja tónlist, sem er höfundunum í hag,“ segir hún um Tónlist.is. „Ef höfundurinn vill ekki að lagið sé notað í þessum tilgangi er honum heimilt að stöðva það.“
Mest lesið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Stór brjóst eru stór Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Fleiri fréttir Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Sjá meira