Í hættulegustu borg Indlands 2. júlí 2009 04:30 Magnús lærir kvikmyndatöku á Indlandi. Með honum er dóttir hans, Anika Ýr.Fréttablaðið/Anton
Magnús Atli Magnússon á þrjá mánuði eftir af kvikmyndatökunámi sínu á Indlandi. Magnús er einn þriggja Evrópubúa í Asian Academy of Film and Television í Noida, nágrannaborg Delí. Hann segist hvorki hrifinn af borginni né Bollywood, en námið sé gott. „Það er hreinlega ekki hægt að búa sig undir þetta," segir Magnús um menningarsjokkið við lendingu. „Allt er í rusli, það gengur allt miklu hægar og auðvitað er miklu heitara. Þetta er allt annar heimur. Þegar ég lenti var verið að sprengja allt í tætlur. Maður verður að fara varlega." Noida er talin hættulegasta borg á Indlandi. „Vinur minn frá Póllandi labbaði stundum heim á kvöldin. Hann var oft stoppaður af löggunni og spurður hvort hann væri snargeðveikur." Hann segir lögguna ekki barnanna besta. „Hún getur alveg eins rænt þig, ef hún er í stuði." Stéttaskiptingin er talin rót glæpanna. „Það eru viðskiptakallar að koma þarna inn í borg sem var bara sveitaþorp áður. Þess vegna eru glæpirnir. Sveitafólkið sér alla þessa peninga meðan það sefur á götunni. Það vill bara fá sinn skerf." Sjálfur býr hann við kakkalakka og rottur. Hitastigið hjálpar ekki, en frá apríl hefur svæðið verið það heitasta í heiminum, og fór hitinn í 48 stig í maí. Magnús hyggst þreifa fyrir sér hérna heima að námi loknu og stefnir á að verða upptökustjóri við kvikmyndir.
Mest lesið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Stór brjóst eru stór Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Fleiri fréttir Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Sjá meira