U2 semur tónlist fyrir mynd Sigurjóns Sighvatssonar 2. júlí 2009 05:45 Bono og írsku rokkrisarnir í U2 semja lag fyrir nýjustu kvikmynd Sigurjóns Sighvatssonar en hún heitir Brothers og skartar Natalie Portman og Jake Gyllenhaal í aðalhlutverkum.
Írska rokkhljómsveitin U2 semur nýtt lag fyrir kvikmyndina Brothers sem Sigurjón Sighvatsson framleiðir. „Þetta er bara eitt lag og kom í gegnum vinskap þeirra og leikstjórans, Jim Sheridan. Þeir hafa unnið áður saman og eru náttúrlega allir frá Írlandi," útskýrir Sigurjón í samtali við Fréttablaðið. Hann vildi ekki meina að þessi vinsælasta hljómsveit heims hefði beðið um fúlgur fjár fyrir lagið. „Nei, þetta kostaði ekkert sérstaklega mikinn pening." Kvikmyndaframleiðandinn upplýsir að Brothers hafi að mestu verið klippt í upptökuveri U2 á Írlandi og því hafi verið hæg heimatökin. Söngvarinn Bono leggur til textann og semur lagið í samstarfi við gítarleikarann The Edge. Sigurjón kveðst ákaflega sáttur við að hafa fengið U2 um borð en bætir því við að það sé alltaf myndin sem geri útslagið. „Jú, jú, auðvitað getur verið gott að hafa nafn eins og U2 í markaðsherferðinni en það er alltaf myndin sjálf sem selur miðana." Brothers skartar þeim Natalie Portman, Toby Maguire og Jake Gyllenhaal í aðalhlutverkum en leikstjóri er sem fyrr segir Jim Sheridan. Myndin er mikil örlagasaga þar sem stríðið gegn hryðjuverkum í Afganistan er í bakgrunni. Brothers er endurgerð á danskri kvikmynd eftir Susanne Bier sem hlaut mikið lof á sínum tíma. Sigurjón kveðst ánægður með útkomuna. Stikla úr henni ætti að rata í sýningar á næstu dögum en myndin sjálf verður frumsýnd í byrjun desember. „Nokkrir gagnrýnendur hafa þegar séð myndina og verið hrifnir en viðbrögð áhorfenda skipta náttúrlega mestu máli," segir Sigurjón. Kvikmyndatímaritið Empire spáir því á vefsíðu sinni að Brothers sé í hópi 31 kvikmyndar sem hugsanlega geti keppt um Óskarsverðlaunin á næsta ári.
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira