Bréf Eiríks og Ingimundar birt 9. febrúar 2009 14:42
Seðlabankinn hefur nú birt svarbréf þeirra Eiríks Guðnasonar og Ingimundar Friðrikssonar til Jóhönnu Sigurðardóttur, en svarbréf Davíðs Oddssonar hefur þegar verið birt eins og flestir vita. Í bréfunum eru bankastjórarnir að svara tilmælum forsætisráherra um að þeir láti sjálfviljugir af störfum. Þeir Eiríkur og Davíð hyggjast ekki verða við þeirri bón en Ingimundur ætlar sér að hætta. „Í sannleika sagt væri það mér mikill léttir að vera laus frá umræddu embætti," segir Eiríkur meðal annars í bréfi sínu. „I bréfinu er hins vegar gefið í skyn að ekki hafi verið staðið faglega að verki í Seðlabankanum og til að svo megi verða sé best að ég biðjist lausnar og láti af starfi þegar í stað, eins og þér greinduð frá í ríkissjónvarpinu sama dag og bréf yðar barst mér. Á þessari forsendu er mér mjög óljúft að biðjast lausnar," segir Eiríkur. Hann segir ennfremur að það hafi hvarflað að sér að hætta í bankanum áður en skipunartími hans rennur út 30. apríl 2012. „Í stað þess að setja stjórn Seðlabankans í uppnám núna með tafarlausri breytingu á yfirstjórninni tel ég heppilegt að breytingar eigi sér hæfilegri aðdraganda svo ekki verði óþarfa röskun á starfseminni." Ingimundi finnst vegið að æru sinni Ingimundur fellst hins vegar á bón Jóhönnu en gagnrýnir þó innihald bréfs hennar. „Ég hef aldrei tekið þátt í stjórnmálastarfi né verið félagi í nokkurri stjórnmálahreyfingu. Ég get því með engu móti fallist á að „pólitísk sjónarmið" hafi „vegið þungt" við skipun mína í bankastjórn Seðlabanka Íslands á sínum tíma eins og gefið er í skyn," segir Ingimundur og bætir við að sér finnist ómaklega vegið að æru sinni í bréfi Jóhönnu „og í orðum sem þér hafi látið falla á opinberum vettvangi." Að lokum segir Ingimundur: „Ég óska eftir lausn frá stöfum úr embætti bankastjóra við Seðlabanka Íslands frá og með 9. febrúar næstkomandi og afþakka boð yðar um „að ganga til viðræðna við stjórnvöld um starfslokagreiðslur."
Mest lesið Segir Bjarna Benediktssyni að stinga tappa upp í „tengdasoninn“ Innlent Verða boðaðir á fund lögreglu Innlent „Ozempic tennur“ meðal aukaverkana þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Segir „rasistum“ að leggja íslenska fánanum og fá sér sinn eigin Innlent „Heppnir að enginn hafi dáið“ Innlent Ókunnugur næturgestur á Patreksfirði Innlent Hvar eru þau nú? Lífið Faðir bræðranna sem létust segir úrræði gegn fíkn rjúkandi rúst Innlent Brottvísun Oscars frestað Innlent Gengst við eftirlíkingunum: „Ég þekki ekki þessi lög og seldi þessar myndir ekki“ Innlent Fleiri fréttir Gæti komið til lokana á vegum Selfosskirkjugarður að fyllast Í haldi grunaður um að hafa valdið alvarlegum áverkum Ungmenni réðust á varnarlaust fórnarlamb í skógræktinni á Akranesi Brottvísun Oscars frestað Segir vegið að rétti fatlaðra við uppbyggingu á Fannborgar- og Traðarreit Veitingamaður með langan brotaferil hlaut þunga sekt Faðir bræðranna sem létust segir úrræði gegn fíkn rjúkandi rúst Áminning Höskuldar stendur Þarf ekki að víkja úr dómsal: „Þegar þú drepst þá mun ég brosa“ Frá Goðafossi að Gróttuvita með hundrað kíló í eftirdragi Slæmt að fá hret á varptíma Verða boðaðir á fund lögreglu Lögregla boðar tónleikahaldara á sinn fund Segir „rasistum“ að leggja íslenska fánanum og fá sér sinn eigin Þorleifur keilari hvergi nærri af baki dottinn Áhugi á Bandaríkjareisum snarminnkar Fordæmir vinnubrögð njósnaranna Segir Bjarna Benediktssyni að stinga tappa upp í „tengdasoninn“ „Heppnir að enginn hafi dáið“ Vill sjá upplýsingaspjald um kjörna fulltrúa í ráðhúsinu Ókunnugur næturgestur á Patreksfirði Nikótínpúðar vinsælastir „Ozempic tennur“ meðal aukaverkana þyngdarstjórnunarlyfja „Beið eftir því að eitthvað stórslys myndi gerast“ Sögulegur „köngulóavefur“, troðningur á tónleikum og stemning á degi sjómanna „Glatað að heyra af því að fólk hafi meitt sig“ Stærsta brautskráning í sögu skólans Einn lagður inn á sjúkrahús eftir tónleikana Gengst við eftirlíkingunum: „Ég þekki ekki þessi lög og seldi þessar myndir ekki“ Sjá meira