Mótmælandinn búinn að kæra hagfræðinginn Breki Logason skrifar 9. febrúar 2009 12:59 Hermann ræði við Ólaf við lögreglubíl eftir uppákomuna. MYND/BJÖRGVIN
Hermann Valsson mótmælandi hefur kært Ólaf Klemensson hagfræðing hjá Seðlabankanum fyrir árás. Hermann segir Ólaf hafa bakkað á sig í morgun fyrir utan bankann en Ólafur hefur kært Hermann fyrir að skemma bíl sinn. Vitni að atvikinu segir Ólaf hafa bakkað á Hermann. „Ég er búinn að kæra hann fyrir árás. Þetta er sami maður og sýndi ógnandi hegðun á kryddsíldarmótmælunum þannig að hann virðist hafa þetta allt á hornum sér," segir Hermann í samtali við Vísi. Ólafur sagði í morgun í samtali við Vísi að Hermann hefði skemmt bíl sinn með því að lemja í hann en nokkuð sér á bílnum að sögn Ólafs. Björgvin Ingi Jónsson varð vitni að uppákomunni og segir klárt mál að Ólafur hafi bakkað á Hermann. „Ólafur keyrir inn á bílastæðið og inn í stæði. Svo er hann að fara að snúa við og bakkar, ég veit ekki hvort hann hafi litið aftur fyrir sig. Hann bakkar allavega mjög harkalega og bara beint á hann, þá lemur Hermann eitthvað í bílinn þegar Ólafur ætlar að reyna að bakka lengra. Síðan keyrir hann útaf stæðinu. Hann hefði alveg mátt vita af honum á bak við bílinn með því að líta í spegilinn," segir Björgvin. Því næst keyrir Ólafur að Ingólfsstræti og ræðir við lögregluna. Hermann segist hafa komið þangað og kært Ólaf fyrir að keyra á sig.
Tengdar fréttir Hagfræðingur Seðlabankans hyggst kæra mótmælanda „Hann var að lemja bílinn með hnefa og kylfu," segir hagfræðingurinn Ólafur Klemensson, en mótmælandi lamdi í bílinn hans og dældaði að sögn Ólafs þegar hann var á leið til vinnu í Seðlabankanum í morgun. Aðspurður segist Ólafur ætla að kæra mótmælandann fyrir að hafa unnið skemmdarverk á grárri Nissan bifreið sem hann ekur um á. 9. febrúar 2009 09:48 Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira
Hagfræðingur Seðlabankans hyggst kæra mótmælanda „Hann var að lemja bílinn með hnefa og kylfu," segir hagfræðingurinn Ólafur Klemensson, en mótmælandi lamdi í bílinn hans og dældaði að sögn Ólafs þegar hann var á leið til vinnu í Seðlabankanum í morgun. Aðspurður segist Ólafur ætla að kæra mótmælandann fyrir að hafa unnið skemmdarverk á grárri Nissan bifreið sem hann ekur um á. 9. febrúar 2009 09:48