Ekki til svo mikið sem minnisblað um ákvörðun Einars 9. febrúar 2009 16:08 Steingrímur J í þingsal
Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra segir að ekki hafi verið til svo mikið sem eitt minnisblað í ráðuneytinu um ákvörðun forvera síns um að gefa út veiðiheimildir til næstu fimm ára á hrefnum og langreyðum. Hann gagnrýnir einnig fátæklegan lagagrunn sem liggur að baki ákvörðuninni og skilur ekki hversvegna forverar sínir hafi ekki endurskoðað lögin sem eru frá fimmta áratug síðustu aldar. Einar segir Steingrím flækja málin. Steingrímur segist hafa beðið um þau gögn sem lágu til grundvallar ákvörðun Einars en í ráðuneytinu hafi ekki fundist svo mikið sem eitt minnisblað. Hann segir gögnin fátækleg sem liggja að baki ákvörðun Einars. „Það er sjálfsagt að fara yfir stöðu þessara mála en menn þekkja bakgrunninn. Fráfarandi sjávarútvegsráðherra tók þessa stóru og umdeildu ákvörðun á síðustu klukkustundum sínum í ráðuneytinu. Við þær aðstæður sem þá komu upp og ég sem nýr ráðherra vildi fá tíma til þess að skoða þessi mál. Það fyrsta sem ég gerði var að skapa aðstæður til þess að fara yfir forsendur málsins," sagði Steingrímur á Alþingi fyrir stundu. Hann sagðist síðan hafa sent hagsmunaaðilum aðvörun þess efnis að verið væri að skoða þessi mál. Það væru eðlilegir stjórnsýsluhættir eins og hann orðað það. Hann segist síðan hafa kallað eftir gögnum frá öðrum ráðuneytum og býst við að fá þau í þessari viku. Eins ætlar hann að funda með hagsmunaaðilum en hann sagði mikla hagsmuni í húfi. Einar Kristinn sagði ástæðu þessarar ákvörðunar sinnar í raun afar einfalda. Hún hafi verið sú að hér væri hægt að halda áfram hvalveiðum. Hann sagði ljóst að menn vissu að allar forsendur lægju fyrir þessari ákvörðun....„og tala um að tiltekin minnisblöð í þessu sambandi liggi ekki fyrir. Allar upplýsingar liggja fyrir í ráðuneytinu og hann veit það," sagði Einar og átti þar við Steingrím J. Hann sagði málið einfalt og spurningin snérist um það hvort hérna ætti að halda áfram hvalveiðum sem samþykktar voru á alþingi árið 1999. „Það er hlálegt að horfa framhjá þessari einfödlu spurningu þegar efnislegar forsendur eru til staðar um hvort það eigi að halda áfram þessum hvalveiðum eður ei," sagði Einar.
Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Sjá meira