Lögreglumenn: Metnaðarleysi fjárveitingarvaldsins 9. febrúar 2009 12:32
Landsamband lögreglumanna segir það lýsa metnaðarleysi fjárveitingarvaldsins gagnvart lögreglunni, að ekki séu til brynvarðar bifreiðar eins og til stóð að fá lánaðar frá dönsku lögreglunni vegna óeirða við opinberar byggingar á dögunum. Landsamband lögreglumanna hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna frétta af því að til greina hafi komið að fá bíla sem þessa lánaða frá Danmörku. Í yfirlýsingunni segir að þær bifreiðar, sem kannað var með hjá danska ríkislögreglustjóranum, hvort hægt væri að fá hingað til lands að láni, séu hluti af staðalbúnaði lögreglu í hvaða landi sem er. Bifreiðunum sé ætlað að veita lögreglumönnum skjól gegn viðlíka orrahríð og var um tíma frá hluta mótmælenda. Sú staðreynd að slíkar bifreiðar skuli ekki vera til hér á landi lýsi hvorutveggja því rólyndisástandi sem betur fer hefur ríkt á Íslandi í gegnum aldir en einnig og á sama tíma metnaðarleysi fjárveitingavaldsins gagnvart lögreglu þessa lands og öryggi hvorutveggja borgara landsins og lögreglumanna. Það metnaðarleysi hefur Landssamband lögreglumanna gagnrýnt um langa hríð. Þá segir einig að það að ástand sem ríkti í Reykjavík þá daga sem svo kölluð "Búsáhaldabylting" stóð yfir hafi verið grafalvarlegt. Í þeim mótmælum sem áttu sér stað utan við Alþingi Íslendinga þar sem réttkjörið Þjóðþing Íslendinga var að störfum, sem og við Stjórnarráðið, skrifstofur réttskipaðs forsætisráðherra landsins urðu lögreglumenn fyrir grjót-, eggja- saur- og þvagkasti, svo eitthvað sé nefnt, frá hluta þeirra Íslendinga sem þar mótmæltu. Lögreglumenn segja að sú framkoma, sem sá hluti mótmælenda sýndi af sér er stóð í slíku, sé ekki einvörðungu vanvirða við það þjóðskipulag sem hér ríkir heldur að auki aðför að lýðræði og sjálfstæði þjóðarinnar. Sem betur fer hafi meirihluti mótmælenda sýnt stillingu og lýst skoðunum sínum og mótmælt því ástandi sem hér ríkir innan þess, sem kallast getur eðlilegra marka. Þá segir að lokum að Landssambandi lögreglumanna þyki það miður að fjölmiðlar þessa lands skuli finna það hjá sér að tortryggja aðgerðir ríkislögreglustjórans, sem allar hafi miðað að því að útvega lögreglumönnum við störf, þá ströngu daga sem mótmælin áttu sér stað, viðeigandi hlífðarbúnað.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira