Fundu gríðarstóra loðnutorfu við Ingólfshöfða 9. febrúar 2009 14:25
Áhöfnin á Lundey NS sigldi nú undir morguninn fram á gríðarstóra loðnutorfu suður af Ingólfshöfða. Torfan var 14 mílna löng, um 600 til 1000 metra breið og þykkt hennar var um 10 til 30 faðmar. Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson RE var aðeins vestar og náði sömuleiðis að mæla loðnutorfuna. Greint er frá þessu á heimasíðu HBGranda. ,,Við vorum að koma frá Vopnafirði þar sem við lönduðum gulldepluafla í gær. Við sigldum um þetta svæði sl. föstudag og urðum þá ekki varir við nema smátorfur á víð og dreif. En svona gerist þetta, stór loðnutorfa gengur upp á grunnið og síðan sigtast inn nýjar göngur á öll grunnum og ef menn halda ekki vöku sinni þá gæti loðnuvertíðin hæglega farið fram hjá þeim," segir Lárus Grímsson, skipstjóri á Lundey NS. ,,Ég hélt að flotinn yrði ræstur út um leið. Í venjulegu árferði þá þættu þetta góðar horfur. Torfan var 25 til 30 faðma þykk þar sem hún var þykkust en víðast var hún um 12 til 15 faðmar á þykkt. Það væri vandalaust að ná 400 til 500 tonna köstum í nót alls staðar á þessum 14 mílum." Lárus segir að það sé loðna víðar fyrir austan. „Vandinn er sá að það koma ekki 500 til 600 þúsund tonn af loðnu í einni gusu til að láta mæla sig," segir Lárus. „Það kemur góð torfa eins og þessi við Ingólfshöfðann og síðan sigtast inn í gönguna á öllum grunnum vestur með landinu. Eftir því sem vestar dregur er meira af loðnu í hverjum rúmmetra sem mælist. Þetta vita menn og það þarf að taka tillit til þess. Ef menn gera það ekki þá gæti loðnan verið komin vestur fyrir Eyjar áður fullnægjandi mæling næst og þá hafa menn ekki langan tíma til stefnu."
Mest lesið „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Sjá meira