Dalai Lama væntanlegur til Íslands 9. febrúar 2009 19:26 Dalai Lama handhafi Friðarverðlauna Nóbels og andlegur og veraldlegur leiðtogi Tíbeta.
Dalai Lama handhafi Friðarverðlauna Nóbels og andlegur og veraldlegur leiðtogi Tíbeta, er væntanlegur til landsins og mun dvelja á Íslandi dagana 1.-3. júní næstkomandi. Þetta er í fyrsta sinn sem Dalai Lama heimsækir Ísland en hann hefur heimsótt fjölda landa undanfarin 50 ár, ýmist sem gestur trúfélaga, ríkisstjórna eða í boði einkaaðila. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. „Meðan á dvöl hans stendur mun Dalai Lama halda fyrirlestur þar sem hann fjallar um lífsgildi, viðhorf og leiðir til lífshamingju ásamt því að svara fyrirspurnum. Fyrirlesturinn verður haldinn í Laugardalshöll þann 2. júní kl. 15:00. Miðasala er hafin á www.midi.is," segir í tilkynningunni. Dalai Lama er þekktur um allan heim fyrir að hafa aldrei kvikað frá þeirri stefnu að leita friðsamlegra lausna í málefnum Tíbets. Hann hefur verið óþreytandi baráttumaður og málsvari þjóðar sinnar frá því að hann flúði landið sitt árið 1959. Upp frá því hefur hann haft aðsetur í Indlandi og stýrt þaðan ríkisstjórn sinni í útlegð. Félagið Dalai Lama á Íslandi stendur fyrir heimsókninni og hefur séð um allan undirbúning hennar. Aðrir dagskrárliðir heimsóknarinnar verða auglýstir síðar.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira