Loðnutorfan ekki nógu stór 9. febrúar 2009 15:21 MYND/365
Loðnan sem fannst út af Ingólfshöfða gefur því miður ekki tilefni til að gefa út kvóta á loðnuveiðar. Þetta segir Sveinn Sveinbjörnsson, leiðangursstjóri um borð í Árna Friðrikssyni. Hafrannsóknaskipið er búið að mæla loðnuna tvívegis frá því í gær og gefa báðar mælingarnar álíka niðurstöðu; að þarna séu um 100 þúsund tonn, að sögn Sveins. Leiðangursmenn um borð í Árna Friðrikssyni mældu torfuna fyrst á svæði sem náði um 7 mílur austur af Ingólfshöfða og 15 mílur vestur fyrir höfðann. Loðnan er á hraðferð vestur með suðurströndinni og í seinni mælingunni var torfan komin um 23 mílur vestur fyrir Ingólfshöfða. Sveinn segir að þetta hafi í raun ekki verið ein torfa heldur fleiri og hafi á köflum verið töluvert þéttar lóðningar. Þetta sé samt ekki nóg til að unnt sé að gefa út kvóta og segir Sveinn óheppilegt að búið hafi verið að skapa væntingar um slíkt. Til þess þurfa að finnast a.m.k. 400 þúsund tonn. Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson heldur áfram loðnuleit en vitað er um fleiri göngur út af Austfjörðum og Suðausturlandi. Sveinn segir að þeir ráði varla einir við að mæla göngurnar og það þurfi að fá fleiri skip til þess. Segir hann í athugun að fá skip til að aðstoða við mælingarnar. Í janúarbyrjun tóku þrjú nótaveiðiskip þátt í loðnuleitinni með Árna Friðrikssyni; Faxi úr Reykjavík, Lundey frá Vopnafirði og Börkur úr Neskaupstað, og voru sérstök tæki til slíks sett um borð í skipin.
Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent „Fólk er ekki heimskt“ Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Breiðholti Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Sjá meira