Skráir sig í Frjálslynda flokkinn - og á atvinnuleysisbætur 9. febrúar 2009 15:34 Sturla Jónsson er búinn að missa trukkinn en skráði sig í Frjálslynda flokkinn.
Vörubílstjórinn Sturla Jónsson, sem fór fremstur í flokki vörubílstjóra sem mótmæltu háu bensínverði síðasta sumar, er búinn að missa öll vinnutækin sín, auk þess sem hann skráði sig í Frjálslynda flokkinn og hyggur þar á pólitískan frama. Flokkurinn er þó ekki það eina sem hann er búinn að skrá sig í - Sturla er líka búinn að skrá sig á atvinnuleysisbætur. Sturla ekki á sjö daganna sæla því fyrirtæki hans er komið í þrot, hann gagnrýnir Lýsingu fyrir harða innheimtu. „Lýsing hreinsaði allt út hjá mér á föstudaginn," segir Sturla sem hefur leitað á náðir atvinnuleysissjóðs ásamt tólf þúsund öðrum Íslendingum. Núna söðlar Sturla um því hann hyggur á frama innan Frjálslynda flokksins, þó hann sé ekki tilbúinn að gefa neitt út varðandi hugsanlegt framboð. Hann segist þó frekar vona að úr verði heldur en hitt. „Flokkakerfið er búið að koma því þannig fyrir að ný framboð eiga sér ekki viðreisnar von í ljósi kostnaðar og tíma," segir Sturla um ástæður þess að Framafaraflokkurinn, sem hann boðaði síðasta sumar, líti ekki dagsins ljós. Hann segir það bæði kostnaðarsamt að fara í framboð auk þess sem lítill tími sé til stefnu. „Ég sá minn hag vænstan í því að fara í Frjálslynda flokkinn," segir Sturla Hann sagðist aðspurður ekki enn hafa talað við formann Frjálslyndra, Guðjón Arnar Kristjánsson. Sturla segir stefnumál flokksins ríma við sínar skoðanir og leggur áherslu á að þjóðfélagið sé eins og fjölskylda. Hann vill hlúa að henni með því að skipta um gjaldmiðil og koma böndum á skuldir heimilanna.
Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent „Fólk er ekki heimskt“ Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Breiðholti Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Sjá meira