Steingrímur ræddi Icesave málið við Bos í morgun Jón Hákon Halldórsson skrifar 5. október 2009 11:49
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra ræddi framgang Icesave málsins við Wouter Bos, fjármálaráðherra Hollands, á fundi í Istanbul í morgun. Þá segist hann hafa rætt stuttlega við Alistair Darling fjármálaráðherra Breta í gær þegar í ljós kom að ekki næðist þríhliða fundur með ráðherrunum. Steingrímur segir fundina tvímælalaust hafa verið gagnlega. Steingrímur segir að hann og Wouter Bos hafi rætt ítarlega leiðir sem hægt væri að fara til að koma hreyfingu á málið. „Það verður svo unnið úr þeim hugmyndum og þær skoðaðar af lögfræðingum og sérfræðingum á bakvið," segir Steingrímur. Steingrímur segir að samkomulag um Icesave strandi á nokkrum atriðum. „Það eru ekkert mörg atriði en þau eru nokkur, sum stór og við fórum bara yfir það og ræddum mögulegar lausnir í því," segir Steingrímur. Steingrímur segir það ekki gera mikið til þótt ekki hafi náðst sameiginlegur fundur með Bos og Darling því þjóðirnar vinni mjög þétt saman. „Og það eru nú Hollendingarnir ekki síður sem að þetta hefur verið í strandi gagnvart. Þannig að sennilegast er það nú mikilvægara að ná fundi með þeim," segir Steingrímur. Steingrímur er staddur á ársfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem fer fram í Istanbul og segist Steingrímur skynja allstaðar í kringum sig áhuga á því að Icesave málið leysist. „Ekki bara í okkar samskiptum heldur er þetta vandamál mjög vel þekkt hér og það vita það allir að það er þetta mál sem hindrar framvindu mála hjá okkur. Það er alveg sama við hvern maður talar hér, að maður er spurður að því hvort maður sjái eitthvað til lands í þessu," segir Steingrímur. Hann segir að allir líti svo á að forsenda þess að Ísland komist áfram með sín mál, til dæmis að áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins verði endurskoðuð, sé sú að Icesave málið leysist.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira