Kannski eðlilegast að Ögmundur stofni eigin flokk Jón Hákon Halldórsson skrifar 5. október 2009 10:32 Gunnar Helgi Kristinsson segir að Ögmundur ætti ef til vill að koma fram sem með sérstakan flokk. Mynd/ Anton.
Það væri kannski eðlilegast að Ögmundur Jónasson og skoðanasystkini hans í VG kæmu fram eins og sérstakur smáflokkur og semdi við ríkisstjórnina sem slíkur, segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Gunnar Helgi segir að með því að hafa sagt af sér embætti úr ríkisstjórninni hafi Ögmundur komið í veg fyrir að hægt væri að beygja hann til hlýðni. „Það þýðir í raun og veru að hann heldur ríkisstjórninni sem gísl," segir Gunnar Helgi. Hafi Ögmundur fólk eins og Ásmund, Lilju, Guðfríði Lilju og Atla með sér þá haldi hann lífi ríkisstjórnarinnar í hendi sér og geti sett henni hver þau skilyrði sem honum sýnist í hvaða máli sem honum sýnist. „Hvort sem það er niðurskurður á spítölunum eða Icesave, eða hvað það á að vera," segir Gunnar Helgi. „Þá væri kannski eðlilegast að hann kæmi fram sem sérstakur flokkur og semdi við ríkisstjórnina um það. Hann er með þessu að reyna að taka sér vald sem er oft vald smáflokka. Þeir standa á vogarstönginni og hafa vald ríkisstjórna í hendi sér og ná þess vegna oft áhrif á ríkisstjórnir sem eru langt umfram þeirra stærð, styrk eða fylgi," segir Gunnar Helgi. Hann nefnir Radikal Venstre í Danmörku sem dæmi um slíkan flokk en einnig Framsóknarflokkinn. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mun flytja stefnuræðu sína á Alþingi í kvöld. Gunnar Helgi telur að ákjósanlegt væri fyrir Jóhönnu að geta sagt frá samskiptum stjórnvalda og erindreka vegna lána og skulda. „Það fer náttúrlega eftir því hvernig Steingrími gengur þarna úti í Istanbul hvernig það er," segir Gunnar Helgi. „En annars vitum við hvað er í fjárlögunum og hún hlýtur auðvitað að beina athyglinni töluvert að þeim. Það eru erfiðir tímar framundan," bætir Gunnar Helgi við.
Mest lesið Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Erlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Fleiri fréttir „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mæta Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Sjá meira