Átta nauðganir verið kærðar í mánuðinum 27. maí 2009 06:00
Átta nauðganir hafa verið kærðar til lögreglu það sem af er maímánuði, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, og hafa þær aldrei verið fleiri í einum mánuði. Öll málin áttu sér stað á höfuðborgarsvæðinu. Undanfarin ár hafa um 30 til 40 nauðganir verið kærðar á ári til lögreglu á því svæði. Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglu, gat ekki staðfest að um átta mál væri að ræða, en sagði það þó nærri lagi. Hann segir um óvenjumargar kærur að ræða í maí. „Þetta kemur nú oft í köstum, en ég hef ekki séð svona margar á svo stuttum tíma áður." Málin tengjast ekki en aðeins einn maður er í haldi vegna rannsóknar á nauðgunarmáli. Björgvin segir málin ólík og ýmist sé um tengsl á milli geranda og fórnarlambs að ræða eða ekki. Nauðganir séu hins vegar mjög tengdar skemmtistöðum og áfengisneyslu. Eyrún Jónsdóttir, umsjónarhjúkrunarfræðingur á Neyðarmóttöku vegna nauðgana hjá Landspítalanum, segir mörg mál hafa komið upp á skömmum tíma hjá þeim. Reynslan sýni að tæplega helmingur mála sé kærður til lögreglu, en í fyrra voru málin 118. Eyrún segir umræðu í samfélaginu ýta undir kærur og þá hafi verklag lögreglunnar breyst til batnaðar. Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur segir tilkynningum um kynferðisbrot hafa fjölgað á undanförnum árum. Erfitt sé að segja til um hvort það sé raunaukning, eða hvort þolendur séu reiðubúnari en áður að koma fram og kæra. Helgi segir flest nauðgunarmál koma upp í kringum skemmtanahald. „Það er ákveðin örvænting í samfélaginu og hún vill oft brjótast fram við aðstæður sem ríkja í skemmtanahaldi við ölvun. Það eru áhættuþættir sem liggja í samfélagsgerðinni núna, óvissuþættir, sem geta blásið út. Heift sem menn bera í hljóði og getur komið upp." - kóp
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Innlent Fleiri fréttir Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Sjá meira