Innlent

Ákvörðun um húsið í sumar

Pétur J. Eiríksson hefur tekið við sem stjórnarformaður Portusar.f
Pétur J. Eiríksson hefur tekið við sem stjórnarformaður Portusar.f

Pétur J. Eiríksson, nýr stjórnarformaður Portusar, segir að ákvörðunar sé að vænta í sumar um hvaða starfsemi verður til húsa í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu við höfnina. Hann reiknar með að Íslenska óperan verði í húsinu.

Pétur segir að ekki þurfi að gera umtalsverðar breytingar til að svo geti orðið. „Það er búið að taka ákvörðun um hringsvið sem gerir allt auðveldara fyrir Óperuna, þá er hægt að skipta um leiktjöld og þannig." Pétur segir enn verið að ræða um Íslenska dansflokkinn. Hann þurfi minna húsnæði og aðstaðan í tónlistarhúsinu verði líklega dýrari en núverandi aðstaða.- kóp








Fleiri fréttir

Sjá meira


×