Innlent

Sjálfstæðið er þeirra styrkur

Höskuldur Þórhallsson
Höskuldur Þórhallsson

„Halda verður í sjálfstæði þessara skóla, því það er þeirra styrkur," segir Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokks.

Höskuldur telur af og frá að fækkun háskóla landsins úr sjö í tvo skili þeim úrbótum í menntamálum sem að er stefnt. Lögð er til sameining skólanna í nýrri skýrslu erlendra sérfræðinga í skólamálum.

„Þá eru til ótal leiðir aðrar til að ná fram hagræðingu í rekstri en að sameina skólana undir einn hatt," segir hann.

Í sumar verða ræddar í háskólasamfélaginu tillögur sérfræðinganna, en þær voru kynntar í fyrradag. - óká








Fleiri fréttir

Sjá meira


×