Skattahækkanir kynntar innan viku 27. maí 2009 05:30 Ráðherrar vildu ekkert gefa upp um hvar eigi að skera niður eða hækka skatta. Fyrstu aðgerðir verða kynntar í kringum næstu helgi. Fréttablaðið/Stefán „
Það er ekki komin niðurstaða í hvar við munum skera niður, eða hvar skattahækkanir verða, en það skýrist á allra næstu dögum,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í gær. Jóhanna sagði ríkisstjórnina vera að skoða niðurskurð í ríkisfjármálum og skattahækkanir í samráði við aðila vinnumarkaðarins, en halli á ríkissjóði stefnir í að verða tuttugu milljörðum meiri en gert var ráð fyrir í síðustu fjárlögum, það er 170 milljarðar í stað 150 milljarða. Til að bregðast við þessum aukna halla mun ríkisstjórnin bæði leggja til hækkanir á sköttum sem og niðurskurð í ríkisfjármálum. „Fyrstu aðgerðir á sviði tekjuöflunar kemur fljótlega. Síðan kemur viðameira frumvarp sem felur í sér væntanlega einhverja frekari tekjuöflun og sparnaðaraðgerðir. Í þriðja lagi kemur svo skýrslan um efnahagsáætlun í heild sinni, bæði fyrir 2010 og fram til 2013. Þar verða í meginatriðum útfærðar þær leiðir sem á að fara í sparnaði og niðurskurði,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Hvorugt þeirra vildi útskýra nánar í hverju skattahækkanirnar eða niðurskurðurinn fælist. „Sumt af þessu er bara þannig að það verður bara að birtast þegar það birtist og framkvæmist,“ sagði Steingrímur. Hann benti þó á að meiri háttar breytingar á sumum skattstofnum verði að falla á fjárlaga- og skattaáramót, sem er uum hver áramót. „Það er ekki hægt að breyta álagningu tekjuskatts á miðju ári nema með miklum vandkvæðum,“ sagði hann. „Stærðargráða vandans er slík að menn munu ekki ná árangri nema bera niður á mjög breiðum almennum forsendum,“ sagði Steingrímur en ítrekaði, líkt og Jóhanna hafði gert áður, að markmiðið sé að hlífa mikilvægustu þáttum velferðarþjónustunnar og dreifa skattahækkunum á þá sem frekar eru aflögufærir. „Það er okkar ásetningur að hefjast strax handa við að takast á við þennan halla, því ef ekkert verður gert í þeim efnum, þá bætist hann bara við þann vanda sem menn þurfa þá að glíma við um áramótin,“ sagði Steingrímur. svanborg@frettabladid.is
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Lögreglan bauð fimmtugum Íslendingi „gistingu með öllu inniföldu“ í fangaklefa Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Sjá meira