Loka þarf Þjóðleikhúsinu í tvö leikár 13. júní 2009 06:00 Þjóðleikhúsið
Ástand Þjóðleikhússins er svo slæmt að það þyrfti að loka því í tvö ár til að ráðast í nauðsynlegar milljarðaendurbætur. Þá er brýnt að byggja við húsið eigi að koma í veg fyrir áframhaldandi hallarekstur. Þetta kemur fram í skýrslu sem sérfræðingar frá þýska fyrirtækinu Gerling+Arendt Planungsgesellschaft skilaði um málið í ágúst 2006. Í skýrslunni eru gerðar alvarlegar athugasemdir við nánast allt sem við kemur ástandi og aðbúnaði leikhússins. Meðal annars kemur fram að leikhúsið uppfylli ekki alþjóðlega öryggisstaðla, brunavarnir séu hreinlega ekki til staðar og að vinnuaðstaðan þverbrjóti gegn lögum um vinnuvernd. Þetta sé vegna þess að þeir staðlar sem fylgt var þegar húsið var byggt árið 1950 séu löngu orðnir úreltir. Húsið sjálft er sagt allt að því að hruni komið. Ekki aðeins sjáist miklar skemmdir á múrklæðningum, heldur sé stálgrindin í burðarvirki hússins tærð og steypan sjálf sprungin og illa farin. Allt þarfnist þetta mikillar endurnýjunar. Enn fremur sé hljóð- og rakaeinangrun ábótavant, sökkull hússins sennilega laskaður og skipta þurfi um alla glugga. Þá sé tækjabúnaður hússins, sem er gríðarmikill, að mestu orðinn ónothæfur sökum aldurs. Hann skapi bæði hættu og virki ekki sem skyldi. Skýrsluhöfundar leggja áherslu á að endurbæturnar verði gerðar í einu vetfangi. Síðan skýrslan var gerð hefur verið ráðist í endurbætur á ytra byrði hússins. Til hefur staðið að endurnýja tæki og búnað leiksviðsins og aðstöðu baksviðs, ásamt því að reisa viðbyggingu til austurs. Í skýrslunni, sem er tæplega þriggja ára, er gert ráð fyrir að kostnaður við endurbæturnar nemi um 30 til 40 milljónum evra. Vegna þess að bæði þyrfti að greiða fyrir innlenda þjónustu og búnað erlendis frá gera gengissveiflur erfitt að spá fyrir um kostnaðinn í dag. Þó er ljóst að hann hleypur á milljörðum króna.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira