Ugla fór á kostum 12. desember 2009 06:45 Ugla Egilsdóttir vakti mikla lukku með uppistandi sínu á Næsta bar á miðvikudaginn var. Fréttablaðið/stefán Mynd/Stefán Karlsson
Nokkrar vinkonur tóku sig til og héldu fyrsta stelpu-uppistandið á Næsta bar á miðvikudaginn var. Á meðal þeirra sem tróðu upp var Ugla Egilsdóttir leikkona, sem var síðust á svið en vakti rífandi lukku meðal gesta. „Ég held að við höfum allar haft gaman af uppistandi nokkuð lengi, mér finnst til dæmis Sarah Silverman mjög skemmtilegur uppistandari, þannig að þegar Nadia fór að skipuleggja þetta var ekki hægt að slá hendinni á móti því," segir Ugla. Aðspurð segist hún ekki hafa æft sig eins vel fyrir kvöldið og hún hafi ætlað sér og þess vegna fengið vinkonu sína til að taka að sér starf hvíslara. „Ég var ekki búin að æfa mig nógu vel. Ég ætlaði að vakna klukkan níu um morguninn og læra þetta allt utan að, en ég svaf yfir mig og þurfti að mæta beint í vinnu þannig að ég náði ekki að læra þetta nógu vel. Ég ákvað þá að nota vinkonu mína sem hvíslara og innlima það í atriðið," útskýrir Ugla og segist ekki hafa átt í vandræðum með að finna umræðuefni heldur hafi hana fyrst og fremst langað að segja aulabrandara. Viðburðurinn var mjög vel sóttur og var staðurinn troðinn út úr dyrum. Ugla segir að það hafi komið henni á óvart hversu margir létu sjá sig. „Þetta var mjög skemmtilegt og gekk mjög vel. Ég hélt að maður þyrfti að bjóða vinum og ættingjum til að fylla staðinn þannig að það kom mér á óvart hversu stórt í sniðum þetta varð." Því má með sanni segja að stúlkunum hafi tekist ætlunarverk sitt og sannað það í eitt skipti fyrir öll að stelpur eru víst fyndnar. - sm
Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Fleiri fréttir Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Sjá meira