Gullmolar níunda áratugarins 27. júní 2009 05:45 Siggi Hlö með tveimur meðlimum Whitesnake á veitingastaðnum Hard Rock Café árið 1990.
Útvarpsmaðurinn Sigurður Hlöðversson, eða Siggi Hlö, hefur gefið út þreföldu safnplötuna Veistu hver ég var? Sextíu lög eru á plötunum þremur sem öll nutu vinsælda á níunda áratugnum. „Það er búið að gefa út svo mikið af plötum með blöðrunum en þarna er ég að tína til gullmolana sem er ekki búið að maukkeyra í útvarpi," segir Siggi, sem stjórnar einnig samnefndum útvarpsþætti á Bylgjunni sem hefur notið mikilla vinsælda. „Ég geri ráð fyrir því að þetta verði söluhæsta plata sumarsins," segir hann kokhraustur um plötuna. „Hún fer í gull, það er alveg pottþétt." Á meðal laga á plötunni eru Turn Me Loose með Loverboy, sem er mest umbeðna óskalagið í útvarpsþættinum, og tvö lög með Classix Nouveaux sem hafa ekki verið fáanleg hér á landi. Einnig má nefna slagara á borð við Do You Really Want To Hurt Me? með Culture Club og Save A Prayer með Duran Duran. Auk þess að stjórna útvarpsþættinum er Siggi gríðarlega vinsæll plötusnúður og er bókaður út mest allt þetta ár. Segja má að hann sé sá næstvinsælasti á landinu á eftir Páli Óskari sem er einnig bókaður langt fram í tímann. „Ég er með bókun í maí 2010. Ég er bókaður út þetta ár enda er ég með tveggja tíma auglýsingaglugga á viku og fólkið vill fá að heyra þessi lög," segir hann. Á myndinni sem fylgir fréttinni er Siggi í góðum félagsskap rokkaranna í Whitesnake sem komu hingað til landsins 1990. „Ég var búinn að fara út og hitta þá og þeir mundu eftir mér þegar þeir komu hingað. Ég fór á 100 þúsund manna rokkhátíð þar sem allir litu út eins og þeir tveir en ég var smjörgreiddur," segir hann og hlær.
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Lífið Fleiri fréttir Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Sjá meira