Forsætisráðherra þakklát Ingimundi 7. febrúar 2009 18:52
Forsætisráðherra íhugar að kalla sérstaklega eftir svari frá Davíð Oddssyni, seðlabankastjóra, hvort hann hyggst láta af embætti. Davíð hefur hingað til virt óskir forsætisráðherra að vettugi. Í bréfi sem forsætisráðherra sendi seðlabankstjórunum þremur á mánudag er þess óskað að þeir láti af embætti þar sem til stendur að endurskipuleggja bankann. Óskaði forsætisráðherra ennfremur eftir svari frá bankastjórunum síðastliðinn fimmtudag. Bankastjórarnir Ingimundur Friðriksson og Eiríkur Guðnason svöruðu forsætisráðherra í gær. Ingimundur ætlar að láta af störfum og tekur uppsögn hans gildi á mánudaginn. Eiríkur ætlar hins vegar að sitja áfram í óþökk forsætisráðherra. Davíð Oddson Seðlabankastjóri hefur hins vegar ekki svarað bréfi forsætisráðherra. „Ég er afar þakklát Ingimundi fyrir að bregðast við með þeim hætti sem hann hefur gert. Það er mjög virðingarvert að hann leggi okkur lið með þessum hætti. Bréf Eiríks er með þeim hætti að hann hefur ekki sagt af sér. Þannig að við þurfum að skoða það bréf og þann boðskap sem í því var og bregðast þá við. Síðan undrar það mig mjög að Davíð oddsson hafi enn ekki svarað þessum óskum. Jóhanna segist ekki ætla að vera með neinar getgátur um það en hún telji að það sé mjög mikilvægt að hann svari einnig. Það sé mjög sérstakt að Davíð svari ekki bréfum sem komi frá forsætisráðherra. Svari Davíð ekki þá muni hún ítreka erindi sitt og kalla eftir svari. Ekki náðist í Ingimund Friðriksson í dag en Eiríkur Guðnason baðst undan viðtali. Davíð Oddson hefur hingað til ekki látið ná í sig.
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Sjá meira