Innlent

Vélhjólamaður slasaðist á Hringbraut

Vélhjólamaður slasaðist í gærkvöldi þegar hann féll í götuna á Hringbraut, rétt við beygjuna inn á háskólasvæðið. Í fyrstu var óttast að maðurinn væri alvarlega slasaður, en svo reyndist ekki við skoðun og aðhlynningu á slysadeild Landspítalans. Nokkrar umferðartafir urðu á meðan björgunarmenn og rannsakendur athöfnuðu sig á vettvangi. Tildrög eru ekki ljós en líkur benda til að hann hafi misst stjórn á hjólinu, fremur en að ekið hafi vrið utan í hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×