Helmingur hyggst draga úr neyslu vegna skattabreytinga 8. desember 2009 18:54
Fimmtíu prósent neytenda ætla að draga úr neyslu á dagvörum í ljósi breytinga ríkisstjórnarinnar á skattkerfinu, ef marka má niðurstöður nýlegrar könnunar. Fólk vill frekar skera niður í stjórnsýslunni, heldur en í menntakerfinu. Það var Capacent sem vann könnunina fyrir Félag íslenskra stórkaupmanna og VR en niðurstöður hennar voru kynntar á Grand Hótel í morgun. Tæplega 800 manns svöruðu könnuninni sem fjallaði um viðhorf almennings til skattkerfisbreytinga og áhrif þeirra á neyslu fólks. Í könnuninni var meðal annars var spurt um nýlegar breytingar ríkisstjórnarinnar á skattkerfinu. Tæplega 30% þeirra sem svöruðu eru mjög óánægðir með þær hugmyndir en rúmlega 15% sögðust frekar ánægðir. „Það sem er athyglisvert við þessa könnun er að 50% neytenda segjast ætla að draga mikið eða nokkuð úr neyslu á dagvöru. Síðan 80% þegar aðrar vörur en dagvörur eru skoðaðar," segir Almar Guðmundsson, framkvæmdarstjóri Félags íslenskra stórkaupmanna. Almennt séð var fólk á því að niðurskurður ríkisútgjalda væri besta leiðin til þess að ná fram jafnvægi í rekstri ríkisins á næstur þremur árum. Og þegar fólk var spurt að því hvar væri best að skera niður, var stjórnsýslan ofarlega í huga. En tæp 57% nefndu stjórnsýslu í því samhengi og rúm 37% nefndu launakostnað ríkisins. Menningarmál, framkvæmdir og landbúnaðarmál voru fólki einnig ofarlega í huga, en fólk vill síður skera niður í heilbrigðiskerfinu, utanríkismálum og menntakerfinu. Almar vonar að könnunin efli almenna umræðu í landinu um skattamál og hann segir tímasetninguna heldur ekki tilviljun, þar sem meðferð þingsins á þessum málum sé að ná hámarki. „Við teljum það skyldu þingmanna að hlusta eftir skoðunum almennings á þessum málum. Það eru klárlega mjög áhugaverð sjónarmið sem eru að koma í gegnum könnunina sem ættu að þýða breytingar á þeim áformum sem núna liggja fyrir þinginu," segir Almar.
Mest lesið Eldgos hafið Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Fleiri fréttir Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Eldgos hafið Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Sjá meira