Hlóðu bálköst í kennslustofu 8. desember 2009 05:15 Lögreglan innsiglaði skólann í gær meðan rannsókn á vettvangi fór fram. Ekki var ljóst í gær hvort hægt var að kenna í húsnæði skólans í dag vegna skemmda af völdum elds, vatns, reyks og sóts.
Piltarnir þrír, allir fimmtán ára, sem kveiktu í Waldorfskóla í Hraunbergi í fyrrakvöld bjuggu til bálköst úr pappír og öðru auðbrennanlegu á gólfi einnar kennslustofunnar, að sögn Snorra Traustasonar, kennara við skólann. Síðan báru þeir eld að kestinum. Piltarnir höfðu undirbúið það að komast inn í skólann eftir að honum hafði verið lokað. Þeir höfðu sett blað milli starfs og hurðar í kjallara hans þannig að hurðin skall ekki í lás. Íbúi í grennd við skólann varð eldsins var, þegar farið var að skíðloga í kestinum, og lét þegar vita. Piltarnir þrír voru handteknir skammt frá vettvangi og yfirheyrðir í fyrrinótt, að foreldrum og fulltrúum barnaverndar viðstöddum. Þeir játuðu að hafa kveikt í skólanum, sem var lokaður í gær vegna skemmdanna sem urðu á húsnæðinu. Snorri sagðist gera ráð fyrir að hægt yrði að hefja kennslu í dag eða á morgun. Í grunnskólanum sem um ræðir eru fjörutíu nemendur sem verða án kennslu í einhverja daga, þar á meðal piltarnir þrír. Snorri segir ekki liggja fyrir hversu mikið tjón hafi hlotist af íkveikjunni, þar sem brunasvæðið hafi verið lokað meðan á rannsókn lögreglu stóð. Þó sé ljóst að það sé mikið. „Það sést að eldurinn hefur verið mikill í einni stofunni,“ segir hann. „Skemmdir af völdum reyks og sóts voru að auki miklar í tveimur stofum sem eru sitt hvoru megin við þá sem kveikt var í.“ Drengirnir sem um ræðir komu rakleiðis í Waldorfskóla úr Fellaskóla í Breiðholti þar sem þeir höfðu reynt að kveikja í gluggatjöldum. Öryggisvörður varð eldsins var áður en hann náði útbreiðslu. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins var sú skýring sem piltarnir gáfu á framferði sínu sú að þeim hefði þótt þetta spennandi. Piltarnir eru allir sakhæfir og verður mál þeirra sent ákæruvaldinu að rannsókn lögreglu lokinni. Þeir eiga að auki yfir höfði sér bótakröfu vegna þeirra skemmda sem þeir hafa unnið. Piltarnir hafa ekki komið við sögu lögreglu áður, en eru nú komnir með sakarferil. jss@frettabladid.is
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Sjá meira