Sundlaug Steinunnar og Lilju verður til á Hofsósi 27. maí 2009 09:00 Ekki verður amalegt að sitja í heitu pottunum eða taka nokkur sundtök í sundlauginni á Hofsósi. Góð mynd er nú komin á mannvirkið sem rís vestan við Staðarbjarg. Áætlað er að sundlaugin verði tekin í notkun í lok þessa árs. „
Auðvitað fylgist maður með, ég bý hérna hinum megin við lækinn," segir Lilja Pálmadóttir. Lilja og aðrir íbúar á Hofsósi horfa nú með tilhlökkun í hjarta sínu á byggingu sem er að rísa, hina margumtöluðu og víðfrægu sundlaug sem þær stöllur gáfu. Sökkullinn er risinn og fyrstu myndir gefa ágætis hugmynd um hvers slags upplifun það verður að sitja í heitu pottunum og horfa yfir Skagafjörðinn og til Drangeyjar. Jafnvel geta hugmyndaríkir sundkappar ímyndað sér að þeir séu að þreyta Drangeyjarsund að hætti Grettis þegar þeir svamla um í 25 metra lauginni. „Það var nú líka alltaf hugmyndin, að gera út á þetta magnaða útsýni og geta horft til Drangeyjar," segir Lilja. Mikla athygli vakti þegar Lilja og Steinunn Jónsdóttir athafnakona gáfu íbúum á Hofsósi sundlaug á kvenréttindadaginn 19. júní árið 2007. Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt teiknaði sundlaugina sem rís vestan við Staðarbjarg en innifalið í gjöfinni er vegleg þjónustumiðstöð. Ekki dugði minna til en forsetahjónin, Ólaf Ragnar og Dorrit, til að taka fyrstu skóflustunguna að lauginni en sú athöfn fór fram í apríl á síðasta ári. Fyrstu steypubílarnir keyrðu í hlaðið strax um haustið en það fór víst um ansi marga íbúana í Skagafirðinum þegar bankarnir og efnahagskerfið brunnu yfir, einhverjir töldu nær öruggt að nú væri úti um sundið. Aldeilis ekki og Skagfirðingar eru ansi bjartsýnir á framhaldið. „Samkvæmt áætlunum er ráðgert að sundlaugin verði klár um mánaðamótin október og nóvember," segir sveitarstjórinn Guðmundur í samtali við Fréttablaðið. Hann átti þó alveg eins von á að framkvæmdirnar gætu teygst fram í desember og að sundlaugin yrði þá jólagjöfin í ár. Í það minnsta í Skagafirði. - fgg
Mest lesið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Lífið Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Lífið Snæddi með furstanum af Mónakó Lífið Málarameistari afhjúpar algengustu mistökin í sumarverkefnunum Lífið samstarf Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Menning Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Tónlist Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Lífið Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Lífið Fleiri fréttir „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Sjá meira