Innlent

Á annað hundrað flugvirkjar boða verkfall

Flugvirkjar hafa boðað tímabundið þriggja daga verkfall sem hefst 8. júní og allsherjarverkfall 22. júní. Um er að ræða flugvirkja hjá Icelandair og Flugfélagi Íslands, en þeir eru 150 til 200 talsins. Þetta kemur fram á vefsíðu Flugvirkjafélags Íslands.

Deilu flugvirkja og viðsemjenda var vísað til ríkissáttasemjara fyrr í mánuðinum, en samningur flugvirkja rann út í lok janúar. Viðræður á milli aðila hafa staðið yfir með hléum frá því í byrjun febrúar. Til tals kom að flugvirkjar tækju á sig skerðingar á launatöxtum en fallið var frá því.

Gert er ráð fyrir að flugvirkjar og viðsemjendur fundi hjá ríkissáttasemjara í dag.

Ekki náðist í Guðjón Valdimarsson, formann Flugvirkjafélags Íslands né Kristján Kristinsson, formann samninganefndar Félags flugvirkja í morgun, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×