Innlent

Síldveiðin hafin

Myndin tengist ekki þessari frétt.
Myndin tengist ekki þessari frétt.

Fjölveiðiskipin Ásgrímur Halldórsson og Jóna Eðvalds fengu fyrstu síldina í ár úr norsk-íslenska síldarstofninum, djúpt norðaustur af landinu í gær, nokkur hundruð tonn hvort skip. Birtingur er líka kominn á svæðið og nokkur skip eru á leiðinni þangað. Þetta er með fyrra fallinu sem síldveiðin hefst og er það sjómönnum og útgerðum kærkomið því skipin voru búin með kolmunnakvótann og höfðu ekki að öðru að snúa en síldinni. Kvóti íslenskra skipa úr stofninum á þessari vertíð er 250 þúsund tonn, sem gæti gefið af sér allt að tólf milljarða króna í útflutningsverðmæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×