Innlent

Björn Bjarnason nýr formaður

Björn Bjarnason, fyrrum ráðherra og þingmaður.
Björn Bjarnason, fyrrum ráðherra og þingmaður.
Björn Bjarnason, fyrrum ráðherra og þingmaður, var í gær kjörinn formaður Samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál. Jafnframt var kona í fyrsta sinn kjörin í stjórn samtakanna en þau voru stofnuð árið 1958. Síðan þá hafa þau verið vettvangur umræðna um öryggis-, varnar- og utanríkismál Norður-Atlantshafsríkja.

Nafni samtakanna breytt

Ákveðið var á aðalfundinum að breyta heiti samtakanna í Samtök um vestræna samvinnu og alþjóðamál. Fram kemur í tilkynningu að með breytingunni hafi fundarmenn viljað árétta, að hlutverk félagsins miði ekki aðeins að því að ræða utanríkis- og öryggismál vegna aðildar Íslands að Atlantshafsbandalaginu heldur þróun alþjóðamála í víðtæku samhengi.

Jón Hákon Magnússon, sem verið hefur formaður SVS um árabil, óskaði ekki eftir endurkjöri.Jón Hákon flutti skýrslu fráfarandi stjórnar og gerði grein fyrir fjölmörgum fundum á vegum samtakanna undanfarin ár bæði með innlendum og erlendum ræðumönnum auk málþinga um einstök viðfangsefni. Þá minntist hann 60 ára afmælis NATO fyrr á þessu ári og 50 ára afmælis SVS á síðasta ári.

Þórunn fyrsta konan í stjórn

Aðalfundurinn samþykkti jafnframt að fækka stjórnarmönnum SVS úr tíu í fimm og eru þeir nú auk Björns Bjarnasonar: Eiður Guðnason, fyrrverandi sendiherra og ráðherra, Gylfi Sigurjónsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri, Kjartan Gunnarsson, lögfræðingur, og Þórunn J. Hafstein, lögfræðingur. Þórunn er fyrsta kona sem tekur sæti í stjórn samtakanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×